151. löggjafarþing — 26. fundur,  26. nóv. 2020.

staða mála á vinnumarkaði nú á tímum Covid-19, munnleg skýrsla félags- og barnamálaráðherra. - Ein umræða.

[11:23]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka umræðu um skýrslu félags- og barnamálaráðherra sem hér fer fram. Ég get ekki hugsað mér að vera í þeirri stöðu að vera atvinnulaus. Þeir sem hafa misst atvinnuna eiga allir um sárt að binda, bætur koma aldrei í stað launa og það er stolt hvers manns að vinna fyrir sér og sínum. Ríkisstjórnin ákvað að greiða sérstakt viðbótarálag á grunnbætur atvinnuleysistrygginga og hækka grunnbætur í 307.000 kr. frá og með áramótum. Hámark tekjutengdra atvinnuleysisbóta er 456.000 kr. á mánuði og þessi réttindi hafa verið lengd tímabundið í sex mánuði og gildir úrræði til 30. september 2021, sem er vel. Hækkaðar greiðslur vegna framfærslu barna atvinnuleitenda verða framlengdar út næsta ár. 6% viðbótarálag reiknast ofan á grunnatvinnuleysisbætur vegna framfærslu hvers barns í stað 4% áður. Auk þess er greidd desemberuppbót sem hljóðar upp á 86.000 kr.

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa tekið mið af afkomu heimilanna og atvinnulífs en hvorugt getur án annars verið. Þeir sem reyna að nota ástandið til að reka fleyg á milli atvinnulífs og heimila í því ástandi sem samfélagið er í tala inn í myrkrið.

En það verður að segja alla söguna eins og hún er. Í þessu mikla atvinnuleysi ber á að fyrirtæki leiti eftir starfsfólki en fái lítil eða jafnvel engin viðbrögð. Þetta ætti ekki að vera til staðar en ég persónulega hef komið í fyrirtæki sem hafa ekki náð að manna þær stöður sem eru lausar.

Virðulegi forseti. Það er áhyggjuefni að fólk á atvinnuleysisbótum hafni lausum störfum. Ég spyr því félags- og barnamálaráðherra hvaða reglur gildi hjá Vinnumálastofnun um að koma fólki sem er á atvinnuleysisskrá til vinnu sem stendur til boða. Það er líka sameiginlegt verkefni okkar að aðstoða fólk við að koma sér aftur til vinnu.