151. löggjafarþing — 26. fundur,  26. nóv. 2020.

staða mála á vinnumarkaði nú á tímum Covid-19, munnleg skýrsla félags- og barnamálaráðherra. - Ein umræða.

[11:47]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Ég vona að hér sé réttur maður á réttum stað á réttum tíma, eins og segir einhvers staðar. En mig langar að ræða aðeins frekar við hæstv. ráðherra um ráðningarstyrkina. Ráðningarstyrkirnir eru úrræði sem hefur verið notað áður. Ég hef oft velt fyrir mér hvers vegna þeir hafi ekki verið meira notaðir en verið hefur, hvort til að mynda þau skilmerki, sem þó hafa aðeins verið víkkuð, eins og komið hefur fram í máli hæstv. ráðherra, séu enn þá heldur þröng. Á vef Vinnumálastofnunar koma fram ágætis upplýsingar um styrkina, en hins vegar kemur ekki fram í hve miklum mæli styrkirnir hafi verið notaðir.

Í ágætum mánaðarskýrslum sömu stofnunar kemur þetta ekki fram. Ég velti því fyrir mér hvort þetta sé hreinlega svo lítið að stofnunin telji ekki ástæðu til að tíunda það eða þá að þetta séu upplýsingar sem erfitt er að taka saman í rauntíma, eins og mánaðarlegu skýrslurnar eru kannski að einhverju leyti. En styrkir eins og þessir, þ.e. ráðningarstyrkir, geta til að mynda skipt mjög miklu máli og að sumu leyti verið svipaðs eðlis og viðspyrnustyrkir, þ.e. að fyrirtæki sem sér fram á og treystir því að aftur komi betri tíð með blóm í haga, getur byrjað með aðstoð þessara styrkja að ráða inn fólk heldur fyrr en ella væri og jafnvel fyrr en tekjuflæðið til fyrirtækisins hæfist ef þessu er haldið nægilega vel að fyrirtækjunum og, eins og ég nefndi áður, skilmerkin nægilega víð. Mér þætti gaman að heyra ráðherra eiga við mig orðastað um þetta.