151. löggjafarþing — 26. fundur,  26. nóv. 2020.

staða mála á vinnumarkaði nú á tímum Covid-19, munnleg skýrsla félags- og barnamálaráðherra. - Ein umræða.

[11:49]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ásóknin í þessa samninga hefur verið að aukast núna á haustmánuðum þannig að það er stígandi í því. Það er kannski m.a. eftir þá breytingu sem við gerðum á reglugerð. Hægt er að segja frá því hér að í ágúst og september voru gerðir 118 samningar um svona ráðningarstyrki og það sem af er árinu eru þeir orðnir 368, þannig að einn þriðji er á tveimur mánuðum. Ásóknin fer því vaxandi og við reiknum með því að svo geti orðið áfram.

Vandinn í þessu er að við breyttum reglugerð sem gerir það að verkum að ef atvinnuleysi fer upp fyrir eitthvað ákveðið — viðkomandi þarf að hafa verið atvinnulaus í ákveðinn fjölda mánaða til að það megi ráða — þá má einstaklingurinn hafa verið atvinnulaus í einn mánuð á því svæði til að það megi ráða. Vandinn er alltaf línudansinn í þessu vegna þess að maður gefur heldur ekki þau skilaboð út í atvinnulífið að það geti allir fengið styrki með öllum launamönnum. Þetta er fyrst og fremst hugsað til fyrirtækja sem geta bætt við sig og sem brú gagnvart atvinnuleysi. Ef við ætlum að fara of nálægt þessari línu þá er þetta einfaldlega orðinn stuðningur og ríkisstyrkur við fyrirtæki. Þá er það úrræði sem á ekki að vera á höndum Vinnumálastofnunar eða atvinnumálaráðherra að útfæra, líkt og tekjufallsstyrkir, viðspyrnustyrkir og annað sem er á hendi hæstv. fjármálaráðherra og hann hefur mælt fyrir þeim hér. Þannig að það kann að vera að hægt sé að gera meira í þessu, en ég veit ekki hversu mikið meira er hægt að gera. Ég myndi vilja sjá hvort þessi stígandi sem verið hefur núna á haustdögum haldi ekki áfram og fleiri fari að nýta sér þetta eftir því sem líður á vegna þess að í september voru 71, en hér á fyrstu mánuðum ársins voru þetta 20–30, þannig að það hefur rúmlega tvöfaldast, þó það. En gjarnan myndi ég vilja sjá þetta vera hærra og meira, ég tek undir það með hv. þingmanni.