staða mála á vinnumarkaði nú á tímum Covid-19, munnleg skýrsla félags- og barnamálaráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessar hugleiðingar og fyrirspurn. Ég deili mörgu í nálgun hennar á þetta, í fyrsta lagi varðandi félagslegu vandamálin og það sem langvarandi atvinnuleysi getur leitt af sér en líka því að við höfum séð að bæði menningin og íþróttirnar, og veitingageirinn að einhverju leyti, það er verið að koma frekar til móts við hann núna, hafa fallið á milli. Ég held að vegna hraðans á framkvæmd hins risastóra stuðningsúrræðis sé í raun heiðarlegt að segja að ekkert óeðlilegt sé þó að okkur yfirsjáist einhverjir hópar á einhverju tímabili. Mér hefur þó fundist við vera m.a. í aðgerð núna gagnvart veitingageiranum, menntamálaráðherra hefur komið hingað, það hefur náðst að einhverju leyti utan um listamenn með frumvarpi sem hefur komið fram, við erum að undirbúa aðgerðir með íþróttafélögunum, allt til þess að reyna fylla upp í götin hjá þeim sem almenn úrræði hafa ekki virkað fyrir. Eðlilega getum við í pólitíkinni deilt um hvort það hafi verið gengið nógu langt og hvort ætti að ganga aðeins lengra o.s.frv. en við höfum öll verið að reyna að feta okkur í þessa átt.
Hv. þingmaður kom inn á hvort fjármagninu væri nægilega beint að þeim sem raunverulega hefðu tapað lífsviðurværi sínu. Ég vil segja að með því að 80 milljarðar hafi runnið til atvinnuleysisbóta þá höfum við eðlilega flutt umtalsverða fjármuni til fólks sem sannarlega hefur tapað tekjum sínum. Hlutabótaleiðin gerði þetta að mjög miklu leyti vegna þess að hún gerði það að verkum að viðkomandi hélt öllum tekjum sínum en skerti heldur ekki réttinn gagnvart tekjutengingum og öðru ef fólk síðan missti vinnuna. Ég hef lagt gríðarlega áherslu á það annars vegar að atvinnuleysisbótakerfið axli sína ábyrgð hvað þetta snertir og hins vegar (Forseti hringir.) að félagslegar aðgerðir fylgi ávallt pökkum ríkisstjórnarinnar. Það hefur að einhverju leyti tekist en það er eins með þetta og allt annað í lífinu að betur má ef duga skal. (Forseti hringir.) Félagsmálaráðherra mun aldrei segja: Nú er ég búinn að fá allt það fjármagn sem ég þarf til að halda utan um alla viðkvæma hópa, vegna þess að það er bara ekki rétt.