staða mála á vinnumarkaði nú á tímum Covid-19, munnleg skýrsla félags- og barnamálaráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Hvað varðar fyrri spurninguna er það rétt að við höfum beitt okkur fyrir Nám er tækifæri en við höfum líka aukið svigrúm til að stunda nám samhliða atvinnuleysisbótum. Í framhaldsskólum og háskólum er mögulegt að stunda 40% nám nú án þess að það skerði rétt til atvinnuleysisbóta. Nám sem skipulagt er samhliða starfi, og það geta verið allt að 22 einingar, er heimilt að stunda án þess að það skerði rétt til atvinnuleysisbóta. Þarna höfum við stigið ákveðin skref en vandinn er hins vegar sá að þegar verið er í aðgerðum sem þessum er alltaf verið að vinna með samspil á milli þess að atvinnuleitandi á að vera í atvinnuleit og svo er námsmaðurinn hinum megin og hann á að fara í menntasjóðskerfið og um leið og kerfin eru tekin saman myndast grá svæði, hversu langt eigi að ganga í þessu sambandi.
Hins vegar varðandi hlutabætur og úthald til að þrengja og stytta. Ég næ ekki að svara þeirri spurningu en get vonandi tekið hana ef ég fæ ræðu hér aftur í lokin, forseti, eða ef forseti kannski tapar tökum á klukkunni eins og á mælendaskránni, þá get ég bætti við á eftir.
(Forseti (BN): Forseti er mjög nískur á þetta.)