151. löggjafarþing — 26. fundur,  26. nóv. 2020.

staða mála á vinnumarkaði nú á tímum Covid-19, munnleg skýrsla félags- og barnamálaráðherra. - Ein umræða.

[12:22]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér vinnumarkaðinn og Covid. Mig langar að spyrja hæstv. félags- og barnamálaráðherra. Nú er útlit fyrir að 4.000 manns séu búnir að vera í ár eða lengur á atvinnuleysisbótum. Hversu margir eru að detta út af atvinnuleysisbótum, eru búnir að vera á þeim í 30 mánuði og eru að detta út af þeim? Hvað verður um þetta fólk? Í flestum tilfellum, ef fólk á maka með lágmarkstekjur, fær það ekkert úr félagslega bótakerfinu. Er hæstv. ráðherra búinn að gera eitthvað varðandi t.d. endurhæfingarkerfið hjá Tryggingastofnun þannig að þetta fólk geti komist þar á endurhæfingarlífeyri og verði síðan aðstoðað við að komast í nám eða í vinnu með styrk? Hver er sýnin á þetta? Þetta skiptir rosalega miklu máli, þetta eru þeir sem verst standa í þjóðfélagi okkar.

Síðan er hitt sem mig langar að velta upp. Í dag greindust 11 manns með Covid-19, þar af voru átta utan sóttkvíar. Það er mjög alvarlegt mál eins og staðan er. Mig langar að spyrja ráðherra í sambandi við Nýja-Sjáland sem hefur séð til þess að stöðva flug og stöðva það að veiran komist aftur inn. Við vitum að vandamál okkar núna er að veiran komst aftur inn í landið utan frá, og það veldur mesta vandanum. Er hann ekki sammála mér í því að við sjáum til þess að við fáum veiruna ekki aftur inn í landið, það sé betra núna til langframa að loka hreinlega landinu og skipa alla í sóttkví á landamærum þannig að við getum opnað verslanir, opnað veitingahús og bari og komið hlutunum aftur í gang? Að við lokum bara landinu eins og gert var á Nýja-Sjálandi? Þá munum við sennilega fá atvinnuvegi landsins aftur af stað og síðan gætum við farið að einbeita okkur að því, þegar bóluefnið kemur, að opna og koma ferðaþjónustunni í gang.