staða mála á vinnumarkaði nú á tímum Covid-19, munnleg skýrsla félags- og barnamálaráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Mig langar líka að spyrja um það sem kom hér fram um þá sem hafa dottið út af atvinnuleysisbótum vegna þess að þeir hafa ekki þegið aðra vinnu, ég man ekki hvað þeir eru margir. Þá er spurningin: Er það vegna þess að þeir gátu ekki unnið þá vinnu sem í boði var? Og hvað verður um þetta fólk? Það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því að fólk neiti að taka vinnu sem því er boðið.
Síðan vil ég líka ítreka að ef við hefðum ekki fengið þessa veiru utan frá inn í landið í sumar þá værum við ekki með allar búðir lokaðar núna, þá væri það ekki þannig að það mættu bara tíu fara inn í búðir, veitingahús, bari og allt saman — þetta væri ekki allt lokað ef við hefðum séð til þess að veiran kæmist ekki inn í landið. Þess vegna segi ég: Eigum við ekki að ganga frá því í eitt skipti fyrir öll og sjá til þess að það sleppi engin veira inn í landið? Það verður bara ráðist á þá veiru sem er þegar komin og við náum henni niður og (Forseti hringir.) þá fer allt af stað hér innan lands og síðan getum við farið að spyrja um ferðaþjónustuna.