151. löggjafarþing — 26. fundur,  26. nóv. 2020.

staða mála á vinnumarkaði nú á tímum Covid-19, munnleg skýrsla félags- og barnamálaráðherra. - Ein umræða.

[12:30]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa prýðisgóðu umræðu sem verið hefur um stöðu á vinnumarkaði, aðgerðir sem ráðist hefur verið í til að styðja við atvinnuleitendur og svo vangaveltur um orsök atvinnuleysisins, hvernig við getum dregið úr því, bæði til skamms tíma og til langs tíma. Mér hefur fundist umræðan vera mjög góð frá öllum flokkum og til fyrirmyndar.

Ég vil þó segja rétt í lokin og ítreka það sem ég sagði í upphafi, að þau áhrif sem veiran hefur haft á ferðaþjónustu, atvinnulíf, veitingageirann, menningargeirann, íþróttalíf og annað, sem sannarlega veldur auknu atvinnuleysi, verður ekki auðvelt að fást við, að eyða þessu atvinnuleysi eða ná verulegum árangri í að draga úr því fyrr en draga fer úr mætti veirunnar, hvort sem það verður með bóluefni eða öðru. Við þurfum að þreyja þorrann í þessu sem þjóð, bæði fyrirtæki, fólk og allir á meðan við bíðum eftir bóluefni sem getur aðstoðað okkur við að koma samfélaginu af stað. Ég held að það hafi skinið í gegn í þessari umræðu, eins og í samfélaginu öllu, að það eru allir orðnir þreyttir á ástandinu. Það eru allir orðnir hundleiðir á þessu ástandi og það er farið að bíta í okkur öll. Eina leiðin í þessu er að gera það sem við Íslendingar höfum alltaf gert vel, þ.e. að reyna að standa saman. Það er að reyna að komast í gegnum þetta, vegna þess að við vitum að þegar veiran fer niður þá fer sólin rísa á nýjan leik. Ég er sannfærður um að það er styttra í það en við höldum og íslensk þjóð verði fljótari að reisa sig við en margar aðrar vegna þess að við erum ansi kraftmikil. Við erum ansi dugleg og við erum tilbúin til þess að bregðast við aðstæðum. Það sýnir sagan okkur svo vel.