viðskiptaleyndarmál.
Virðulegur forseti. Ég fjalla hér um frumvarp til laga um viðskiptaleyndarmál. Með þessu frumvarpi er stefnt að því að styrkja réttarvernd viðskiptaleyndarmála gegn handhöfum þeirra og auðvelda þeim að leita réttar síns og einfalda stofnanaumgjörð. Frumvarpið er í fullu samræmi við áherslur í nýsköpunarstefnu fyrir Ísland um að íslenskt regluverk ýti undir samkeppnishæfni og nýsköpun og að eignarréttur fyrirtækja og frumkvöðla yfir hugverkum og viðskiptaleyndarmálum verði verndaður í hvívetna.
Hv. efnahags- og viðskiptanefnd hefur fjallað um málið og fékk á sinn fund Daða Ólafsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Halldór Oddsson frá Alþjóðasambandi Íslands og Steinunni Pálmadóttur frá Samtökum iðnaðarins. Umsagnir um málið bárust frá Alþýðusambandi Íslands og Samtökum iðnaðarins. Þá barst nefndinni einnig minnisblað frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Með frumvarpinu er verið að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/943 og vernda þannig trúnaðarupplýsingar um sérþekkingu og viðskiptaupplýsingar gegn ólögmætri öflun, notkun og birtingu þeirra. Auk þess er lögð til ríkari refsivernd viðskiptaleyndarmála en í gildandi lögum og afnám stjórnsýslueftirlits með öflun, notkun og afhjúpun þeirra. Um efni og markmið frumvarpsins að öðru leyti vísast til greinargerðar með því. Breytingartillögur meiri hlutans eru tæknilegs eðlis og ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif.
Virðulegur forseti. Ég ætla að hlífa okkur við því að lesa breytingarnar upp enda liggja þær fyrir á þar til gerðu skjali með málinu. Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með breytingunum sem lagðar eru til í því sérstaka þingskjali. Undir nefndarálit þetta skrifar sú sem hér stendur, Óli Björn Kárason, formaður nefndarinnar, Brynjar Níelsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Jón Steindór Valdimarsson, Ólafur Þór Gunnarsson, Willum Þór Þórsson og Oddný G. Harðardóttir.
Virðulegur forseti. Þetta er nú ekki neitt ofboðslega flókið mál, þ.e. við fengum ekki margar umsagnir um það, enda virðist almennt vera nokkur ánægja og fólk virðist telja nauðsynlegt að vernda vel hugverk og viðskiptaleyndarmál. Og eins og ég sagði áðan þá teljum við það í samræmi við nýsköpunarstefnu okkar. Ég ætla þó að geta þess að í umfjöllun nefndarinnar var svolítið talað um refsirammann. Það voru ekki allir sammála um mikilvægi hans eða hversu langt ætti að ganga. En hafa ber í huga í þeim efnum að auðvitað getur hér verið um verulega fjárhagslega hagsmuni að ræða þegar svo ber undir.
Ég ætla líka að geta þess, virðulegur forseti, að við veltum því aðeins fyrir okkur hvort brotið væri í rauninni alltaf skýrt, hvort einhver gæti mögulega lent í því að upplýsa um viðskiptaleyndarmál án þess að hafa það beint í hyggju. Þá skal hafa í huga í sambandi við refsirammann að slíkt tekið til greina við ákvörðun um refsingu, hvort um beinan ásetning er að ræða eða hvers eðlis brotið er og hvaða afleiðingar það kann að hafa.