viðskiptaleyndarmál.
Herra forseti. Ég var einn nefndarmanna í hv. efnahags- og viðskiptanefnd sem var ekki með á nefndaráliti meiri hluta. Ástæður fyrir því eru kannski örlítið flóknar og erfitt að skýra þær en það sem málið snýst um í grunninn er takmörkun á tjáningarfrelsi fólks. Engu að síður er þetta takmörkun á tjáningarfrelsi sem þykir réttmæt í ljósi þess að um er að ræða upplýsingar, svokölluð viðskiptaleyndarmál, sem varða fjárhagslega hagsmuni fyrirtækja. Í einhverjum tilfellum getur það hreinlega snúið að því að fyrirtæki hafa eytt miklum fjármunum í að rannsaka og þróa nýjar uppgötvanir, hafa þróað viðskiptaaðferðir eða annað þar fram eftir götunum og það er skaðlegt fyrir þau að þessum leyndarmálum verði ljóstrað upp, hvort heldur sem er til tiltekinna þriðju aðila eða almennt í fjölmiðlum. Þá er kannski eðlilegt að segja: Gott og vel, við höfum skilning á því að ákveðnar takmarkanir séu á tjáningarfrelsi í ákveðnum tilvikum.
Þau tilvik, eins og þau koma fram í frumvarpinu, eru m.a. þegar um er að ræða einhvers konar lögmæta öflun. Og það sem frumvarpið gerir, sem er gott, er að það býr til ramma fyrir lögmæta notkun og afhjúpun viðskiptaleyndarmála. Það er mjög mikilvægt vegna þess að í einhverjum tilfellum gæti það verið eitthvað sem varðar við lög eða hreinlega að einhver hafi með, eins og segir í a-lið 3. gr., sjálfstæðri uppgötvun eða sköpun áttað sig á nokkurn veginn sömu hugmynd. Þá er það augljóslega ekki eitthvað sem er eðlilegt að refsa fyrir. Gott og vel.
Svo er hin hliðin á þessu, ólögmæt öflun, notkun eða afhjúpun, og um það snýst frumvarpið kannski fyrst og fremst, þ.e. ef einhver hefur öðlast upplýsingar með ólögmætum hætti og ákveður að nota þær eða ef einhver hefur t.d. skrifað undir samning um að nota ekki upplýsingar en brýtur það samkomulag og afhjúpar þar með viðskiptaleyndarmál. 5. gr. tekur svolítið á því sértilfelli þegar einhver hefur nálgast upplýsingarnar á ólögmætan hátt og notar þær eða afhjúpar á ólögmætan hátt í þeim tilgangi að uppljóstra. Það er bara fínt, en á móti kemur að það eru tilvik sem falla þarna á milli og hafa þarf í huga. Það eru t.d. tilfelli þar sem einhver fær vitneskju um leyndarmál með einhverjum hætti sem falla myndi undir skilgreininguna um ólögmæti, en ekki er um ásetning að ræða. Sömuleiðis ef einhvers konar notkun eða afhjúpun lendir innan grás svæðis, t.d. þar sem einhver tengdur viðskiptaaðili fær óvart upplýsingar í hendurnar o.s.frv.
Það er rétt sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir sagði hér áðan, refsiramminn sem er til staðar er þannig hugsaður að hann taki tillit til slíkra aðstæðna. Dómstólar hafa almennt þennan sveigjanleika í úrskurðarvaldi sínu, einmitt til þess að geta tillit til aðstæðna. Það sem ég hef engu að síður áhyggjur af er að í gegnum tíðina hafa verið mörg tilfelli, hvort sem litið er til Bandaríkjanna, Evrópu eða víðar, þar sem trúnaður hefur verið brotinn með einum eða öðrum hætti en á þann hátt sem hefur verið svo mikið á gráa svæðinu að auðveldlega væri hægt að færa rök fyrir því að það ætti að vera leyfilegt og uppljóstrari viðskiptaleyndarmáls hafi orðið fyrir of mikilli takmörkun á tjáningarfrelsi. Málið hefur hins vegar verið metið á hinn veginn, sem ólögmæt afhjúpun á viðskiptaleyndarmáli, og dæmt á strangari hátt vegna þess. Ég var með lista yfir nokkur slík tilfelli en ég er ekki með hann á mér sem stendur. Ég bið fólk því um að fletta þessu upp. Það eru nokkur fræg mál af þessu tagi.
Frumvarpið er nokkuð gott því að í því er að finna einhvers konar jafnvægi milli þess að hafa takmarkanir á tjáningarfrelsi fólks í sérstökum tilvikun annars vegar og hins vegar að heimila fólki að uppljóstra í ákveðnum tilvikum. Engu að síður er það tilfellið að fjársektirnar gætu orðið of háar eða fangelsisvist notuð á þann hátt sem væri í grundvallaratriðum ósanngjarnt og óeðlilegt. Mér finnst í fyrsta lagi alltaf mjög varhugavert að hægt sé að dæma fólk til fangelsisvistar fyrir tjáningu. Það finnst mér ekki eiga heima í lýðræðissamfélagi. Það er alveg rétt að til eru önnur lög sem hafa svipuð ákvæði, t.d. ákvæði varðandi móðgun við þjóðarleiðtoga og álíka. Mér finnst slíkt ekki heldur eiga rétt á sér í lögum. Það á auðvitað að vera fullkomlega heimilt að móðga þjóðarleiðtoga. Mér finnst þessi takmörkun jafnvel töluvert eðlilegri en það. Það skiptir meira máli að verja það sem hægt er að ljóstra upp og varðar við verulega og eðlilega hagsmuni fólks en að verja hagsmuni þjóðarleiðtoga sem eru móðgunargjarnir.
Engu að síður snýst málið í grundvallaratriðum um að finna þarf ákveðið jafnvægi. Í frumvarpinu næst jafnvægi annars vegar fram með því að hafa jafnvægi milli hagsmunanna en hins vegar varðandi refsingarnar sem legið geta við því að afhjúpa. Það er of langt gengið að fangelsa fólk fyrir að tjá slíkar upplýsingar. Það er eðlilegra að hafa fjársektir og eðlilegt að horft sé til þess, eins og reyndar er talað um í frumvarpinu, að þær séu í samræmi við umfangið. Það er bara fullkomlega eðlilegt. Þetta er auðvitað flókin leið til þess að útskýra einfaldan hlut.
Ég er ekki hlynntur þessum refsiramma, þ.e. fangelsisvistuninni. Mér finnst hún bjóða ákveðinni hættu heim. Hún er ekki alveg í samræmi við hugmyndir um tjáningarfrelsi í lýðræðissamfélagi. Þó svo að um geti verið að ræða einhvers konar ólögmæta öflun, notkun og afhjúpun viðskiptaleyndarmála, eins og kemur fram í 4. gr. frumvarpsins, ætti slíkt brot fyrst og fremst að hafa fjárhagslegar afleiðingar í för með sér, eins og kemur reyndar mjög oft fram í trúnaðarsamkomulögum þess efnis. Það er í rauninni alsiða að slíkt samkomulag sé gert, bæði hér á landi og annars staðar í heiminum.
Ég hefði helst viljað að þetta fangelsisákvæði yrði fellt út. Að öðru leyti er jafnvægið í frumvarpinu nokkuð gott. Þar er nokkuð vel horft til mismunandi þátta. Þetta er takmörkun á tjáningarfrelsi en það eru til tilfelli þar sem takmarkanir upp að ákveðnu marki eru eðlilegar í lýðræðissamfélögum. Þetta kemst næstum því á réttan stað en gengur örlítið of langt.