151. löggjafarþing — 26. fundur,  26. nóv. 2020.

viðspyrnustyrkir.

334. mál
[14:13]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég var að vísa til þess að þingið hefði tekið afstöðu til þess að hafa þrepaskiptingu áður, fært til viðmiðin og þannig dálítið markað leiðina eftir umfjöllun í þinginu og þetta frumvarp kemur síðan í kjölfarið á því. Hver er hugmyndafræðin á bak við það að nota 60%? Það er sjálfsagt að fara aðeins ofan í það. Til þess að skýra það þá þarf maður að vísa til alls þess sem gerst hefur á fyrri stigum mála. Þá er ég sérstaklega að vísa til þess þegar við tókum t.d. þátt í því að greiða uppsagnarfrest fyrir fyrirtæki. Við sögðum síðastliðið vor að ríkið vildi styðja fyrirtæki sem vildu komast í híði, komast í var, draga úr starfsemi sinni mjög verulega. Við ætluðum að styðja fyrirtæki í þeirri viðleitni sinni að halda hjartslættinum gangandi í gegnum erfiðasta tímann og samanlagt voru aðgerðir okkar dálítið sniðnar að því. Þá sitjum við væntanlega, eftir að fyrirtæki hafa nýtt sér öll fyrri úrræði, eftir með svona flóru fyrirtækja sem hafa aðlagað sig töluvert að aðstæðum. Þau hafa fengið stuðning til að geta gert það, tekjufallsstyrki, lokunarstyrki, styrki vegna uppsagnarfrests o.s.frv. Það eru þau fyrirtæki sem við viljum halda áfram að styðja, sem hafa gert slíkar ráðstafanir, og einhvers staðar verður að draga mörkin. Fyrirtæki sem hefur segjum tapað 30% af tekjum sínum, ja, ég segi bara: Það er mín skoðun að það er ekki nægilega mikið áfall til að það réttlæti að við tökum skattfé, að teknu tilliti til allra annarra aðgerða sem við höfum boðið upp á, og ráðstöfum því til að viðhalda rekstrinum og standa undir rekstrarkostnaði hjá fyrirtæki. (Forseti hringir.) Það heldur jú eftir 70% af tekjum sínum. Þegar það hefur tapað meiru en helmingi finnst mér staðan vera önnur og þaðan kemur 60% viðmiðið.