151. löggjafarþing — 26. fundur,  26. nóv. 2020.

viðspyrnustyrkir.

334. mál
[14:16]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Hér er að sjálfsögðu mikilvægt mál á ferðinni, nýtt úrræði til að koma til móts við vanda rekstraraðila vegna kórónuveirufaraldursins eins og við þekkjum. Ef maður fer yfir greinargerðina þá er lagt til að þeir rekstraraðilar sem hafa orðið fyrir minnst 60% tekjufalli geti fengið styrk til að mæta rekstrarkostnaði og síðan er tímabilið rakið þarna, eins og kemur fram í greinargerðinni. Ég vildi aðeins fara yfir þessa skilvísi á opinberum gjöldum með hæstv. ráðherra, hversu ströng þau skilyrði eru. Lagt er til að lokunarstyrkur sem rekstraraðila kann að hafa verið ákvarðaður, vegna þess almanaksmánaðar sem um er getið og umsókn varðar, dragist frá viðspyrnustyrk. Stuðningsgreiðslur vegna launa á uppsagnarfresti og ráðningarstyrkir dragast frá og rekstrarkostnaður við útreikning á styrkfjárhæð. Það eru ýmsir liðir, herra forseti, sem eru dregnir frá í þessu úrræði sem er annars mjög mikilvægt. Ég hef verið í góðu sambandi við fjölmarga litla rekstraraðila í ferðaþjónustu og einkum í Suðurkjördæmi. Menn segja að þetta sé allt of flókið. Þeir þurfi að leita sér aðstoðar til að sækja um. Jafnvel bókarar hafi ekki næga þekkingu og þeir þurfi að leita sér aðstoðar hjá lögmönnum. Er þetta að skila því sem til er ætlast hvað þetta varðar?

Varðandi viðspyrnustyrkina þá er alltaf verið að miða við stöðugildi á fyrirtæki. Þar munu einyrkjar, sem eru eigendur að fyrirtækjunum, ekki eiga rétt á neinu. Er það ekki rétt skilið hjá mér, hæstv. fjármálaráðherra, (Forseti hringir.) að það sé í raun verið að skilja eigendur fyrirtækjanna algerlega eftir og þegar kemur að viðspyrnunni verði þeir kannski bara búnir að missa þessi fyrirtæki þannig að það verður engin viðspyrna?