151. löggjafarþing — 26. fundur,  26. nóv. 2020.

fjáraukalög 2020.

337. mál
[16:01]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ráðherra segist hafa mætt þörf, hafi sýnt viðbrögð og hafi að mörgu leyti gert nóg. Ég spyr á móti: Er fjárfestingarátak upp á 1% af landsframleiðslu rétt viðbragð? Er það nóg? Er lækkun atvinnuleysis upp á eitt prósentustig milli ára nóg að mati ráðherrans? Er áframhaldandi hallarekstur Landspítalans merki um að hér sé gert nóg og þörfinni sé mætt? Eru 260.000 kr. eftir skatt fyrir öryrkja, eldri borgara og atvinnulausa merki um rétt viðbragð og að hér sé gert nóg? Er 50 milljarða kr. þörf hjá sveitarfélögum landsins merki um að hér sé gert nóg? Og er viðbót í umhverfismál, herra forseti upp á 0,1% af landsframleiðslu merki um að hér sé gert nóg? Og nýsköpunin fær 0,3% af landsframleiðslu á næsta ári. Þetta er ekki nóg til að mæta dýpstu kreppu í 100 ár. Þetta eru ekki merki um að hér sé verið að mæta þörf eins og hæstv. ráðherra talar um. Hér er ekki verið að sýna rétt viðbrögð.

Herra forseti. Ég er að kalla eftir frekari viðbrögðum til að mæta þessari djúpu kreppu því að við þurfum að gera meira. Hagsmunaaðilar og stofnanir og þjóðin eru að kalla eftir að við stígum stærri skref en þessi ríkisstjórn hefur verið tilbúin til að gera.