fjáraukalög 2020.
Virðulegi forseti. Mig langar bara hreinlega að spyrja á móti: Eru 300 milljarðar ekki nóg? Eru 400 milljarðar það sem hv. þingmaður er að leita eftir? Hvernig væri að skoða virkniúrræðin? Hvernig væri að horfast í augu við það að ríkisstjórnin hefur stóraukið fjárfestingarstigið þannig að við erum að nálgast það sem mest hefur verið? Við höfum þurft að vinna upp talsverðan slaka í fjárfestingu. Sveitarstjórnirnar eru ekki að fylgja eftir, eins og við hefðum viljað sjá, í hlutdeild hins opinbera. En skortur á fjárfestingu á Íslandi í dag er frá einkageiranum og þess vegna höfum við boðað sérstakt frumvarp til að hvetja til frekari fjárfestinga.
Já, ég tel að það að fjármagna vel heilbrigðiskerfið, m.a. með skýrri yfirlýsingu um að við munum að sjálfsögðu sjá til þess að allur Covid-tengdur kostnaður sé afgreiddur hratt og örugglega, sé nóg. Já, ég tel það. Ég tel að þegar við horfum til baka, yfir starfstíma þessarar ríkisstjórnar, hafi hún sýnt í verki þær áherslur sem hún boðaði strax í upphafi um að styðja enn betur við (Forseti hringir.) og bæta fjármögnun bæði í heilbrigðis- og velferðarkerfinu.