151. löggjafarþing — 26. fundur,  26. nóv. 2020.

hagsmunafulltrúar aldraðra.

109. mál
[19:06]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um hagsmunafulltrúa aldraðra, hvorki meira né minna. Með mér á tillögunni er hinn ágæti þingflokksfélagi, Guðmundur Ingi Kristinsson. Í ályktuninni segir svo:

„Alþingi ályktar að fela félags- og barnamálaráðherra að leggja fyrir árslok 2021 fram frumvarp til laga um embætti hagsmunafulltrúa aldraðra.“

Það er ekki seinna vænna fyrir hæstv. félags- og barnamálaráðherra að drífa í þessu núna, þetta er síðasti veturinn sem þessi ríkisstjórn starfar a.m.k. að óbreyttu. Ég veit náttúrlega ekkert hvað verður hérna næsta haust en það kemur bara í ljós.

Í greinargerð með tillögunni segir að þingsályktunartillagan hafi verið lögð fram á 149. löggjafarþingi og 150. löggjafarþingi og nú sé hún lögð fram að nýju óbreytt.

Með tillögu þessari er lagt til að fela félags- og barnamálaráðherra að undirbúa og leggja fram frumvarp til laga um embætti hagsmunafulltrúa aldraðra. Þjónusta við aldraða dreifist á ríki, sveitarfélög, félagasamtök og einkaaðila. Lög og reglur um málaflokk aldraðra eru flókin, ekki síst á sviði skatta, almannatrygginga og heilbrigðismála. Aldraðir eru stór og fjölbreyttur hópur og misjafnlega færir um að gæta eigin réttar og hagsmuna. Að mati flutningsmanna er því rík þörf á málsvara sem gætir réttinda og hagsmuna aldraðra og leiðbeinir þeim um rétt þeirra.

Hagsmunafulltrúa aldraðra er ætlað að vekja athygli á réttinda- og hagsmunamálum aldraðra almennt, jafnt á opinberum vettvangi sem hjá einkaaðilum, leiðbeina öldruðum um réttindi sín og bregðast við telji hann að brotið sé á þeim. Hagsmunafulltrúi aldraðra skal hafa frumkvæðiseftirlit með persónulegum högum allra eldri borgara, sérstaklega með tilliti til þess að koma í veg fyrir félagslega einangrun, næringarskort og almennt bágan aðbúnað þeirra. Jafnframt skal hann gera tillögur um úrbætur á réttarreglum er varða aldraða og hafa frumkvæði að stefnumarkandi umræðu í samfélaginu um málefni þeirra.

Tillögur í þessa veru hafa áður verið lagðar fram á þingi en ekki hlotið afgreiðslu. Ég veit eiginlega ekki hvort ég á að telja upp á hversu mörgum þingum þingmenn hafa freistað þess og reynt virkilega að kalla eftir hagsmunafulltrúa, þessum embættismanni, til að taka utan um málaflokk aldraðra. Það er sennilega á sjö eða átta löggjafarþingum sem hafa verið tillögur um umboðsmann aldraðra, oft hefur tillagan hlotið það nafn, sem í rauninni felur í sér nákvæmlega það sama og hagsmunafulltrúi, og á 136. löggjafarþingi var t.d. lögð fram tillaga til þingsályktunar um málsvara fyrir aldraða.

Að mati okkar flutningsmanna er ærin ástæða til að láta loks verða af því að koma á fót embætti hagsmunafulltrúa aldraðra. Ef einhvern tímann þá er það núna. Við horfum upp á alveg gríðarlega bágan aðbúnað margra og meira að segja þó að við séum ekki að tala um fátækt eldra fólk, ef við tölum bara um aldraðra heilt yfir, þá erum við núna að ganga í gegnum heimsfaraldur kórónuveiru og aldraðir eru viðkvæmasti hópurinn, hópur sem við eigum virkilega að taka í fangið og vernda með öllum tiltækum ráðum. Hugsa sér, það var gerð könnun fyrir tveimur árum á því hvernig raunverulegur aðbúnaður væri hjá eldri borgurum sem höfðu verið útskrifaðir af Landakoti og voru með sjálfstæða búsetu. Þeir voru samt einangraðir einir heima. Sjálfstæða búsetan fól það í sér að þau voru ein og einangruð heima. Það var kannski ein maltflaska í ísskápnum, ein lýsisflaska, þau treystu sér ekki til að fara út í búð, það var hálka. Þau voru bara heima. Fullorðið fólk vill ekki vera fyrir, vill ekki vera að hringja í vini og vandamenn og vill ekki láta hafa fyrir sér. Það er bara eiginleiki sem við þróum með okkur eftir því sem við verðum eldri. Það er okkar að taka utan um þetta fólk og sýna frumkvæði til að vernda það. Það er okkar að passa pabba og mömmu og afa og ömmu. Það er okkar að sýna þeim virðingu og að við metum það sem þau hafa gert fyrir okkur, að við sem komum á eftir og erum að byggja upp það sem þau settu í fangið á okkur, að við sýnum þeim virðingu og væntumþykju og segjum við þau: Við elskum ykkur og viljum gera allt svo ykkur líði sem best.

Þessi þingsályktunartillaga um hagsmunafulltrúa aldraðra felur í sér nákvæmlega þetta, að segja: Okkur þykir vænt um ykkur, við viljum ykkur allt það besta og þið, elsku pabbi, mamma, afi og amma, eigið virkilega að njóta þess að eiga áhyggjulaust ævikvöld.