151. löggjafarþing — 26. fundur,  26. nóv. 2020.

hagsmunafulltrúar aldraðra.

109. mál
[19:13]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við í Flokki fólksins erum hér að mæla fyrir enn einu máli, mjög þörfu máli sem hefur verið kallað eftir lengi. Því miður hefur kallinu ekki verið svarað einhverra hluta vegna. Það virðist vera mjög erfitt fyrir ríkisstjórn eftir ríkisstjórn að sjá til þess að einhver standi upp og geti varið eldri borgara okkar. Eins og kom fram í ræðu hv. þm. Ingu Sæland er því miður vandamál víða þegar eldri borgarar eru útskrifaðir af spítala og sendir heim til sín eftirlitslausir, að það er enginn til að hugsa um þá, viðkomandi kannski orðinn einn, makinn farinn. Í þeirri aðstöðu eru eldri borgarar oft á mjög slæmum stað, bæði andlega, líkamlega og fjárhagslega. Þarna þarf að vera til staðar einhver sem ber hag þeirra fyrir brjósti og verndar þá og sér til þess að þeir fái alla þá aðstoð sem þeir þurfa á að halda.

Því miður notum við oft ótrúlega ljót orð um það vandamál þegar eldri borgarar eru á sjúkrahúsum vegna þess að það vantar pláss annars staðar. Það er ekkert annað en útskriftarvandi spítalans vegna þess að það vantar pláss og það er ríkisstjórnin sem sér til þess að það eru ekki pláss til staðar. Þá var fundið upp þetta fáránlega og eiginlega vanvirðandi orð, fráflæðisvandi, sem er eiginlega vandi þegar eitthvað á að flæða frá einhverjum en mætti eiginlega nota um skólp en ekki eldri borgara þessa lands og er þeim til óvirðingar og við eigum að hætta að nota það orð. Við eigum að segja sannleikann skýrt og skorinort: Þetta er útskriftarvandi. Þetta er vandi ríkisstjórnarinnar. Þetta er vandi þeirra. Það eru ekki nægileg mörg hjúkrunarrými til að taka við fólkinu.

Því miður tekur annað við sem er mjög hvimleitt og það eru biðlistar. Það eru biðlistar eftir að komast inn í hjúkrunarrými og ekki nóg með það, það er biðlisti til að komast í færnimat til að komast á biðlista til þess að komast í hjúkrunarrými. Eins og ég hef sagt, maður bíður eftir að þeir búi til biðlista til þess að komast á biðlista til að komast á biðlista, þrískiptingu. Það er ótrúleg óvirðing að við skulum leyfa okkur að haga okkur svona. Fyrir utan það að þegar þau komast loksins inn á hjúkrunarheimili er í mörgum tilfellum staðan sú að tekin eru af þeim öll fjárhagsleg völd og þeim er bara úthlutað vasapening. Þvílík óvirðing. Við getum sagt að við látum kannski börn og unglinga fá vasapeninga en við eigum ekki að koma svona fram við eldri borgara, að svipta þá algerlega fjárhagslegu valdi og skammta þeim einhverja hungurlús í vasapeningum. Við eigum að bera mun meiri virðingu fyrir eldra fólki. Við erum að tala um mömmu, pabba, afa, ömmur, við erum að tala um fólk sem á fullan rétt á því að því sé sýnd full virðing og komið fram við það á þann hátt sem það á skilið eftir langa starfsævi og eftir að hafa byggt upp samfélag okkar.

Eins og hefur komið fram, núna í Covid-faraldrinum, er þetta hópurinn sem verið er að gleyma. Þetta er hópurinn sem á að skilja eftir. Þetta eru breiðu bökin sem eiga að taka á sig skellinn vegna Covid og það er ömurlegt. Það er eiginlega með ólíkindum að þeir skuli enn eina ferðina finna þennan hóp. Af hverju geta þeir það? Jú, vegna þess að það er enginn hagsmunafulltrúi til að verja hann og það er kominn tími til. Það er búið að benda á það og löngu kominn tími til að sjá til þess að þessi mál verði ekki eins og þau eru í dag, það á að sjá til þess að borin sé virðing fyrir öldruðum, þeir hafi full mannréttindi og fái þær hækkanir á framfærslu og annað sem þeir eiga fullkominn rétt á. Það er ömurlegt til þess að vita að það virðist vera hægt að hækka alla og láta alla fá rétta framfærslu nema þennan hóp. Það er eins og það sé alveg meitlað í stein hjá ríkisstjórn eftir ríkisstjórn að þetta séu breiðu bökin, þetta sé fólkið sem eigi að taka á sig byrðarnar. En þetta er ekki rétt og sérstaklega ömurlegt að þeir skuli ekki geta séð til þess að þeim sem eru á lægstu bótunum í þessum hópi sé hjálpað.