afbrigði.
Virðulegur forseti. Viðreisn styður það að sjálfsögðu að þetta mikilvæga mál, sem tryggir öryggi þjóðar, öryggi sjómanna, landsbyggðar og mikilla hagsmuna, fari hér hratt í gegn. Það breytir ekki því að þetta er fráleit staða sem ríkisstjórnarflokkarnir og ráðherrar þessara málaflokka hafa komið okkur í með því að hafa ekki náð samningum og axlað þá ábyrgð að tryggja að öryggishagsmuna þjóðarinnar sé ávallt gætt í hvívetna. En Viðreisn mun að sjálfsögðu stuðla að því að liðka fyrir þingstörfum í dag.