afbrigði.
Virðulegur forseti. Íslendingar búa við mikla óvissu þessa dagana; veira herjar á okkur og efnahagur þjóðarinnar versnar. Atvinna og afkoma þúsunda er í óvissu meðan annar hluti landsmanna býr við nokkuð gott starfsöryggi. Ríkisstjórninni hefur ekki tekist að koma fram með trúverðugum hætti á þessum erfiðu tímum, en það að setja lög á verkföll gerir enginn að gamni sínu og ætti eingöngu að gera í neyð. Þingflokkur Miðflokksins telur ekki forsvaranlegt að bæta á óvissu landsmanna, ekki síst sjómanna og þeirra sem búa við óöryggi, um að öryggismál landsmanna sé í uppnámi til lengri tíma. Við munum því styðja þetta frumvarp alla leið hér í þinginu.