kjaramál flugvirkja Landhelgisgæslu Íslands.
Virðulegi forseti. Við höfum séð allt of oft á síðustu misserum hvernig samninganefnd ríkisins nær einhvern veginn að sigla viðræðum við aðila á vinnumarkaði í strand þannig að við höfum ótrúlega oft komist alveg fram að hengifluginu. Gjarnan er viðkvæði þeirra ráðherra sem stéttirnar heyra til að þeir séu ekki aðilar að samningaviðræðum. Svona hefur boltinn haldið áfram að rúlla og nú er komið að einni stétt í viðbót og munurinn er sá að við féllum fram af hengifluginu og þess vegna stöndum við hér í þessum sal og ræðum mögulega lagasetningu. Aðilar að deilunni áttu auðvitað að leysa málið áður en til þess kæmi. Nú er annar aðili deilunnar kominn með sitt sterkasta vopn, lagasetningu, til að — hvað? Hvetja samninganefnd ríkisins áfram til góðra verka í samningaviðræðum í framhaldinu? Þetta er ekki gott skref.
Mér brá dálítið þegar ég heyrði hæstv. ráðherra í andsvörum við hv. þm. Smára McCarthy segja, með leyfi forseta:
„Hv. þingmaður talar hér eins og ríkið hefði bara átt að bjóða meira, gefa allt eftir. Á meðan Icelandair fékk 10% hagræðingu út úr sínum samningum á ríkið ekki fá neitt.“
Er planið sem sagt að reyna að kreista einhverja hagræðingu út úr stéttinni? Erum við með lagafrumvarp á verkfall stéttarinnar í höndunum til þess að ríkið geti náð 10% hagræðingu út úr flugvirkjum á sama tíma og stéttin liggur, eins og aðrar sem starfa við flug, mjög lágt? Nægir að nefna fall WOW og síðan allt sem fylgt hefur. Það er ekki um auðugan garð að gresja fyrir flugvirkja á vinnumarkaði. Núna virðist eiga að kreista hagræðingu út úr þeim, eins og ráðherra kallaði það.
Mig langar aðeins að fjalla um þau skilyrði sem þarf að uppfylla svo meðalhófs sé gætt við lagasetningu og eins og ráðherrann fór yfir eru þau þríþætt. Í fyrsta lagi þarf skerðingin að byggjast á lögum. Í öðru lagi skal hún vera í þágu almannahagsmuna og réttinda annarra og í þriðja lagi þarf hún að vera nauðsynleg. Mig langar aðeins að víkja að skilyrðinu um nauðsyn og sérstaklega það sem við ræddum hér í andsvörum, ég og hæstv. ráðherra, varðandi hvort ekki hefði verið hægt að fá flugvirkja til starfa þrátt fyrir verkfall án þess að grípa til lagasetningar. Það hefur komið fram að undanþágubeiðnum Landhelgisgæslunnar hafi verið hafnað fjórum sinnum á síðustu þremur vikum í verkfallinu. Stéttarfélagið hefur sem sagt ekki fallist á beiðni stofnunarinnar um undanþágur frá verkfalli til að flugvirkjar geti sinnt störfum sínum. Þá er mjög einfalt úrræði að skjóta slíkri niðurstöðu til Félagsdóms. Félagsdómur hefði getað úrskurðað um það á stuttum tíma, nokkrum dögum, þannig að á öllum þessum þriggja vikna tíma sem verkfallið hefur staðið hefði mátt láta reyna á það hvort tryggja mætti lágmarksstarfsemi þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar á grundvelli þess lagaverks sem gildir um vinnudeilur. Ég fékk ekki skýr svör frá ráðherranum varðandi þetta en það hljómaði eins og ekki hefði verið látið reyna á þetta. Ég vænti þess að allsherjar- og menntamálanefnd grennslist frekar fyrir um þetta.
Síðan er kannski spurning um stærri pólitíska ábyrgð. Ef þessi stétt innan Landhelgisgæslunnar skiptir höfuðmáli til að þyrlusveitin starfi, hvers vegna í ósköpunum þarf yfir höfuð að leita eftir undanþágu til að einhver lágmarksmannskapur sé til staðar? Í lögum um Landhelgisgæsluna segir að þeir starfsmenn sem sinna löggæslustörfum megi hvorki fara í verkfall né taka þátt í verkfallsboðun. Þar með er búið að ná utan um þann hluta starfsfólksins sem starfar í þyrlunum sjálfum en niðri á jörðu starfar fjöldi fólks sem er nauðsynlegur til að viðhalda starfsemi. Þess vegna er ár hvert, fyrir þessa hópa og hópa í ýmsum öðrum stofnunum, birt skrá yfir þau störf hjá stofnunum ríkisins sem eru undanþegin verkfallsheimild. Hjá Landhelgisgæslunni telur sá listi 52 störf. Þar eru mest áberandi störf sem tengjast varnartengdri starfsemi þannig að öryggissvæðin eru áberandi, en á skrifstofu og flugvelli hér í Reykjavík er fjöldi starfa talinn upp. Og án þess að ég ætli að gera eitthvað lítið úr mikilvægi þeirra starfa eru þar á meðal lagerstjóri, launafulltrúi og starfsmannastjóri. Þeir skipta máli til að viðhalda starfsemi stofnunarinnar en hún siglir ekki í strand þó að þessir starfsmenn fari í verkfall í nokkra daga, alla vega myndi verkfall starfsmannastjóra ekki kyrrsetja þyrlu Landhelgisgæslunnar eins og raunin er núna.
Þess vegna hlýtur allsherjar- og menntamálanefnd að þurfa að spyrja að þessu: Hvernig stendur á því, í ljósi þess sem ráðherra segir nú, að þessi hópur starfsfólks sé nauðsynlegur til að tryggja öryggi sjófarenda og öryggi almennings, að ekki var búið svo um hnútana í undanþáguskránni að hluti flugvirkja væri alltaf til taks, óháð verkfallsaðgerðunum? Þannig er það gert hjá stofnunum sem þurfa að halda dampi.
Þá langar mig að nefna örlítið þá ofboðslega erfiðu stöðu sem við erum í núna yfir helgina, að horfa upp á það að engin þyrla sé tiltæk. Hér er atriði sem ég tel eðlilegt að allsherjarnefnd skoði líkt og hin fyrri og það er að spyrja í hvers verkahring það hefði verið að vinna bug á þeirri stöðu. Í hvers verkahring er það að fá dönsk yfirvöld, sem Ísland er í samstarfi við, til að stýra varðskipi nær landinu svo hér geti verið björgunarþyrla á svæðinu? Það kemur fram í viðtölum við talsmenn Landhelgisgæslunnar að það sé ekki í verkahring Gæslunnar að óska sérstaklega eftir björgunarþyrlu hingað til lands. Hins vegar geti hún á grundvelli samnings við Danmörku leitað til skipa sem eru nálægt landinu. Í verkahring hvers er að óska eftir slíkri aðstoð? Og kannski mikilvægasta spurningin: Hvers vegna var það ekki gert? Vegna þess að þó að deila flugvirkja og ríkisins hefði leyst miklu fyrr í vikunni þá hefði sú staða alltaf komið upp að um þessa helgi væri engin björgunarþyrla tiltæk. Hvernig í ósköpunum gat það gerst?