151. löggjafarþing — 28. fundur,  27. nóv. 2020.

kjaramál flugvirkja Landhelgisgæslu Íslands.

351. mál
[19:58]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Sjaldan veldur einn er tveir deila. Oft má geta sér til um að þegar tveir aðilar deila liggi ábyrgðin svolítið báðum megin. Hins vegar hef ég ekki heyrt neinn ráðherra hér og ekki einn þingmann í stjórnarmeirihluta taka ábyrgð á sínum þætti í þessari deilu. Hér vísar hver á annan. Landhelgisgæslan segist ekki vera aðili að þessari vinnudeilu. Dómsmálaráðherra segist ekki hafa beina aðild að þessari deilu. Samt flytur hún okkur frumvarp um lögbann á þessa deilu, þannig að einhver er aðild hennar en engin er ábyrgð hennar, samkvæmt hæstv. ráðherra. Ætlum við að vísa ábyrgðinni á samninganefnd fjármálaráðuneytisins? Skulu embættismenn bera endanlega ábyrgð á hlut ríkisins í þessu máli? Nei, það hlýtur að vera þessi ríkisstjórn sem ber ábyrgð á þeirri stöðu sem upp er komin, að við séum nú á föstudagskvöldi að setja lögbann á verkfall vinnandi fólks sem hefur til þess ótvíræðan rétt samkvæmt lögum að fara í verkfall. En hér kemur enginn upp og tekur ábyrgð að þessari grafalvarlegu stöðu.

Ég verð að segja að ég íhugaði að taka þá ábyrgu afstöðu að sitja hjá og taka ekki ábyrgð á þessum slæma leik ríkisstjórnarinnar og standa ekki í vegi fyrir því að nauðsynlegt öryggistæki kæmist í gagnið á ný. Það taldi ég að vera ábyrga afstöðu gagnvart því sem ég taldi vera deilu á milli tveggja aðila. Og þar sem tveir deila er það sjaldan einn sem veldur. Hins vegar sá ég það á meðan ég sat á maraþonfundi allsherjar- og menntamálanefndar að hæstv. forsætisráðherra gerir sér ferð í sjónvarp allra landsmanna og vegur að verkfallsréttinum, sem við erum að loka á núna. Segir að hún vilji að ríkissáttasemjari fái heimild til að fresta verkfalli bara upp á eigin spýtur, forði okkur frá þeim óþægindum sem við stöndum í hér að þurfa að setja lögbann á verkföll. Það er náttúrlega vandræðalegt fyrir ríkisstjórn að hafa haft tíu mánuði til að semja og vera ekki enn þá komin með samning. Óþægilegt, voðalega erfitt að standa hérna og varpa frá sér allri ábyrgð, tala um að þetta sé ekki á sínu borði, vísa í allar áttir, taka enga ábyrgð. Óþægilegt. Kannski betra að setja það á borðið hjá ríkissáttasemjara. Hann er hvort eð er svo vanur svona vinnudeilum. Hann hlýtur að geta ákveðið hvenær rétt er að fresta verkfalli og hvenær ekki. Koma þessu frá okkur.

Ég verð að segja að það fauk í mig þegar ég heyrði þessar fréttir, virðulegi forseti. Og ég átta mig á því að það á að nota þessa ferð til að vega að verkfallsrétti vinnandi fólks, svona akkúrat á föstudagskvöldi í vinnudeilu sem er kannski ekki mest áberandi í samfélaginu, að koma með létta, litla tillögu um að taka af vinnandi fólki réttinn til verkfalls, eyðileggja þetta mikilvæga verkfæri. Ég verð að segja að eftir að hafa séð þetta raðast spilin upp; það á að nota þessa ferð til að vega að grundvallarréttindum vinnandi fólks, bara svona upp á þægindin svo við þurfum ekki að vera í þessari óþægilegu stöðu aftur, þá er ég komin á bálrautt nei.