151. löggjafarþing — 28. fundur,  27. nóv. 2020.

kjaramál flugvirkja Landhelgisgæslu Íslands.

351. mál
[20:02]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Þetta er ekki staða sem nokkurt okkar vill vera í, held ég, að þurfa að standa í þeim sporum að setja lög á verkfall. Þetta er sterkasta vopnið sem verkalýðshreyfingin hefur og staðið hefur verið vörður um í gegnum tíðina. En hér er samt sem áður neyðarástand sem þarf að rjúfa. Eins og kom fram hjá hv. formanni allsherjar- og menntamálanefndar þá kom það mjög skýrt fram á fundi nefndarinnar áðan með málsaðilum í þessari deilu að við þetta verður ekki búið. Ástandið sé orðið þesslegt að það komi til með að hafa áhrif, eins og komið hefur fram hjá forstjóra Gæslunnar, alveg fram í febrúar, bara út frá því sem við stöndum frammi fyrir í dag. Eins og hann sagði þá færi illa ef þetta stæði lengur og ástandið væri ekki stöðvað núna.

Það eru auðvitað vonbrigði að ekki tókst að semja af því að það er við samningaborðið sem á að leysa þessi mál, ekki bara þessi heldur öll kjaramál og mörg þeirra hafa verið leyst, yfir 60 samningar hafa verið gerðir núna að undanförnu. Þetta mál er hins vegar fast í ákveðinni stöðubaráttu og virðist ganga illa að höggva á þann hnút. Það olli mér nokkrum vonbrigðum að sjá í umsögn flugvirkja, um þann tíma sem er ætlaður fram til 4. janúar, að menn eru beinlínis að gefa að mínu mati þá yfirlýsingu að það dugi ekki til til að semja. Ef það er í rauninni afstaðan þá hefðum við verið að horfa fram á alla vega þann tíma, við getum þá ályktað út frá því að það hefði ekki náðst saman á morgun eða hinn.

En þrátt fyrir að það verði sett lög á verkfall þá geta menn haldið áfram að tala saman og það mun ríkissáttasemjari gera, reyna að finna nýja vinkla og ná sáttum hjá aðilum á þeim tíma sem fram undan er. Það er ekki okkar að fara inn í samningagerðina sem slíka heldur að bregðast við neyðarástandi sem nú ríkir í öryggismálum þjóðarinnar, hvort sem það eru sjómenn eða fólk út um hinar dreifðu byggðir. Nú er vetrartími og meira að segja búið að ganga yfir óveður og annað slíkt sem Gæslan hefur svo oft þurft að grípa inn í og koma til aðstoðar. Núna er það ekki hægt og þannig getum við bara ekki haft það. Við getum ekki boðið þjóðinni okkar upp á það. Þess vegna stöndum við í þessum sporum, virðulegi forseti.