151. löggjafarþing — 28. fundur,  27. nóv. 2020.

kjaramál flugvirkja Landhelgisgæslu Íslands.

351. mál
[20:05]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Guðmundur Andri Thorsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Eitt af mikilvægustu hlutverkum ríkisins á hverjum tíma er að tryggja öryggi landsmanna. Nú er engin þyrla búin til að fara í loftið ef ákall um það kæmi. Jafnvel þó að samið yrði núna strax eða frumvarpið samþykkt núna þá yrðu aðeins tvær þyrlur tiltækar í tíu daga í desember. Það liggur því fyrir að áhrifa verkfallsins mun gæta næstu vikur og mánuði. Að mati 1. minni hluta er sú óviðunandi staða sem upp er komin algerlega á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Fyrsti minni hluti leggur ríka áherslu á að samningsréttur launamanna sé varinn í samræmi við 74. gr. stjórnarskrárinnar og 11. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og telur ótvírætt að mjög sterk rök þurfi til að grípa inn í hann með lagasetningu. Það er á ábyrgð samningsaðila að ná samningum. Ef þeir bregðast því hlutverki hefur ríkissáttasemjari samkvæmt lögum ýmsar leiðir til að knýja á um niðurstöðu. Allar slíkar leiðir þarf að fullnýta áður en inngrip löggjafans geta komið til álita.

Dómstólar hafa ekki hafnað því að löggjafinn grípi inn í kjaradeilu svo fremi ríkir almannahagsmunir séu í húfi eða efnahagsleg vá vofi yfir. Í því sambandi er rétt að vísa til dóms Hæstaréttar í máli ASÍ gegn ríkinu, samanber mál nr. 167/2002, þar sem fram kemur að dómstólar geri ríkar kröfur um skilgreiningu almannahagsmuna og afgerandi rökstuðning til að slík inngrip geti talist réttlætanleg, og er þar m.a. vísað ítarlega til lögskýringargagna. 1. minni hluti telur hlutverk löggjafans að vega og meta hvort þeir almannahagsmunir sem hér um ræðir séu nægjanlega ríkir til að sett séu lög á rétt fólks til að berjast fyrir kjörum sínum og réttindum. Það er álit 1. minni hluta að enn sé það ekki fullreynt að samningar gætu tekist. Hins vegar eru mjög ríkir almannahagsmunir í húfi að tryggja öryggi og heilsu landsmanna. Og tíminn er naumur. 1. minni hluti telur það því varla forsvaranlegt að greiða atkvæði gegn þessari lagasetningu og mun því sitja hjá.