kjaramál flugvirkja Landhelgisgæslu Íslands.
Virðulegi forseti. Inngrip það sem er hér til umfjöllunar í kvöld er alvarlegt og dramatískt, en um leið algjörlega nauðsynlegt. Hagsmunir almennings krefjast þess einfaldlega að þetta skref sé stigið hér í dag. Það er af þeim ástæðum sem þingflokkur Viðreisnar styður þetta mál. Við horfum upp á slíkt neyðarástand að hver klukkustund gæti skipt máli hvað varðar öryggishagsmuni landsmanna. Að baki þessari afstöðu er sú sýn að nauðsynin sé svo brýn að þetta skref þurfi að taka, að öryggi þjóðarinnar á sjó og á landi krefjist þess, og einnig sá skilningur sem þekktur er úr dómaframkvæmd að verkfallsrétturinn, þó að hann sé vissulega grundvallarréttur og mikilvægur, er aldrei án undantekninga og hann geti ekki trompað þá hagsmuni þegar lífi fólks kann beinlínis að vera stefnt í hættu.
Er það afstaða mín að ég greiði þessu frumvarpi atkvæði mitt vegna þess að í því felist stuðningur við pólitískar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í aðdraganda þess að við erum í þessari stöðu? Nei. Þessi vandi kom ekki upp í morgun og hann kom ekki upp í gær, hann kom ekki upp í síðustu viku eða í síðasta mánuði. Við erum vissulega að horfa á, að því er virðist, og höfum raunar fengið staðfest, mjög erfiða og þunga kjaradeilu sem komin var á þann stað að verkfall er brostið á. En stóra málið í þessu samhengi eru hagsmunirnir eins og þeir horfa við almenningi. Hæstv. dómsmálaráðherra sagði í þessum sal fyrr í dag að það væri hennar skoðun að það væri ekki boðlegt að ein stétt hefði þau miklu völd að geta sett Gæsluna í þá stöðu sem við vitum öll hér í kvöld hver er. Hin hliðin á því er vitaskuld sú að fyrst Gæslan er í þeirri stöðu er almenningur um leið í þeirri stöðu að öryggi hans er ekki tryggt.
Það eru þess vegna mikil vonbrigði að þegar dómsmálaráðherra leggur fram þetta frumvarp upplýsir hún ekki um leið um að hún sé með einhverjar aðgerðir í smíðum í ráðuneyti sínu til að taka á þessum vanda til frambúðar. Það gerir hún ekki. Hæstv. dómsmálaráðherra svarar því um leið með því að kynna ekki samhliða einhverjar aðgerðir sem hún ætlar að fara í til lengri tíma. Hún upplýsir um leið að hún hafi ekki verið tilbúin, ekki undir þessa stöðu búin. Þá hefðum við átt að sjá einhver markvissari skref úr þeirri áttinni. Þannig að öryggishliðin og öryggishagsmunirnir sem við heyrum um hér í dag að séu undirstöðurökin fyrir þessari lagasetningu virðast ekki hafa verið ofar á forgangslistanum en svo að við sjáum engar sérstakar vísbendingar um að þá stöðu eigi að leysa varðandi þá vankanta sem hæstv. dómsmálaráðherra tiltekur sérstaklega að hafi verið meginvandinn í þessari deilu. Lausnin felst í því að setja lög á nú þegar hættan er ekki aðeins í námunda við okkur heldur orðin okkur öllum ljós og aðkallandi.
Mér finnst þetta ekki vera góður vitnisburður um verkstjórn í dómsmálaráðuneytinu því að grundvallarhlutverk Landhelgisgæslunnar er að gæta og verja hagsmuni og öryggi almennings. Afstaða okkar er sem sé sú að þetta alvarlega inngrip núna sé algerlega nauðsynlegt í ljósi aðstæðna og engin önnur leið fær, en að sama skapi er mat okkar það að verkstjórn dómsmálaráðherra í máli þessu veki upp stórar og óþægilegar spurningar.