kjaramál flugvirkja Landhelgisgæslu Íslands.
Virðulegur forseti. Hér hafa stjórnarþingmenn talað um hversu þungbært þeim reynist að setja lög á verkfall vegna mikilvægis verkfallsréttar launafólks og vegna þess neyðarástands sem nú hefur skapast. Það sé ábyrgðarhluti að setja lög á verkfall. En þau taka enga ábyrgð á þeim tíu mánuðum sem hafa liðið frá því að samningar runnu út, þau taka enga ábyrgð á því að nú er svo um hnútana búið að það þarf að setja lög á verkfall til að tryggja öryggi landsmanna. Það er bent á alla nema þann sem stendur í púlti þegar kemur að því að taka ábyrgðina á þeirri stöðu sem uppi er. Nú virðist eiga að nýta ferðina til þess að grafa undan verkfallsrétti vinnandi fólks, færa ákvörðunarvald um frestun verkfallsaðgerða yfir á ríkissáttasemjara, lauma því inn svona rétt fyrir helgina. Ég ætla ekki að taka þátt í þessari aðför, virðulegi forseti. Þingflokkur Pírata gerir það ekki heldur. Við greiðum atkvæði gegn þessum lögum.