151. löggjafarþing — 28. fundur,  27. nóv. 2020.

kjaramál flugvirkja Landhelgisgæslu Íslands.

351. mál
[20:22]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Meiri hlutinn telur að almennt eigi ekki að grípa inn í verkfallsréttinn en gerir það samt og ber fyrir sig neyðarástand. Það er vissulega neyðarástand sem þarf að leysa en að beita Alþingi með því að setja lög vegna þess að ríkisstjórnin gat ekki lagað vandamálið og komið í veg fyrir neyðarástand á tíu mánuðum, að beita Alþingi á þennan hátt til að skera ríkisstjórnina úr snörunni sem hún kom sér í sjálf, er óásættanlegt.

Ég hef verið í þessari sömu stöðu áður, hinum megin borðsins, lög á verkfall sem ég var í. Þetta er endurtekning á þeirri hörmulegu ákvörðun þingsins. Hér sýnir ríkisstjórnin skort á forsjá og hún kom sér sjálf í það, býr til þessar afsakanir til að það sé hægt að nota einfaldlega sama trikk og áður. Það er sannarlega svartur föstudagur í dag.