151. löggjafarþing — 28. fundur,  27. nóv. 2020.

kjaramál flugvirkja Landhelgisgæslu Íslands.

351. mál
[20:30]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Það er búið að stilla Alþingi upp við vegg hér í kvöld vegna þess að ríkisstjórnin vann ekki vinnuna sína almennilega hvað varðar þessa deilu síðustu tíu mánuðina. Það var á þeirra ábyrgð að gera það, á þeirra ábyrgð að ekki kæmi til þess að bæta svo gráu ofan á þennan svarta föstudag í kvöld. Með ummælum sínum í kvöldfréttum bætti hæstv. forsætisráðherra gráu ofan á þetta svarta kvöld sem gerir það að verkum að ég verð bálrauð eins og minn þingflokkur í kvöld.