151. löggjafarþing — 28. fundur,  27. nóv. 2020.

kjaramál flugvirkja Landhelgisgæslu Íslands.

351. mál
[20:31]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég furða mig á því að heyra hv. þingmenn Pírata að koma hér upp til að ræða um atkvæðagreiðslu um tiltekin lög og draga þar inn í umræðu sem á sér langan aðdraganda í sölum þingsins og er ekki til umræðu í kvöld og er ekki til umræðu á næstunni, en hefur verið hér oft í kringum lagasetningu á verkföll, hvort ríkissáttasemjari ætti að hafa vel afmarkaðar og skýrt skilgreindar heimildir til að fresta verkfallsaðgerðum tímabundið ef tilteknar aðstæður eru fyrir hendi, eins og tíðkast annars staðar á Norðurlöndum. Þetta á ekki að koma neinum á óvart enda er þetta afstaða sem ég hef margoft lýst, m.a. í umræðum um lagasetningar á verkföll hér í þingsal.

Ég kann ekki við það, herra forseti, þegar tiltekin mál eru til afgreiðslu að hv. þingmenn þessa tiltekna flokks kjósi að fara að ræða allt önnur mál í umræðum um atkvæðagreiðslu. Ég legg til að þeir eigi bara við mig orðastað í fyrirspurnatíma því að þetta mál er ekki á dagskrá þessa þingfundar og er ekki undir í þessari atkvæðagreiðslu.