kjaramál flugvirkja Landhelgisgæslu Íslands.
Virðulegur forseti. Ég veit ekki betur en að allsherjar- og menntamálanefnd hafi verið að funda um þetta mál, að við séum að ræða um þetta mál í þinginu í dag og hæstv. forsætisráðherra hafi verið spurð um þetta mál í fjölmiðlum í dag og að hún hafi svarað þessu til. Það er þess vegna sem við drögum þetta mál inn í þessa umræðu, vegna þess að hæstv. forsætisráðherra setti það á dagskrá í kvöldfréttum allra landsmanna í kvöld og við Morgunblaðið og tengdi það við þessa umræðu í kvöld. Þannig að ég afþakka að ég sé með einhverjar óeðlilegar tengingar hér. Það er hæstv. ráðherra sem kemur með þessar tengingar á okkar borð. Það er hún sem skapar þessi hugrenningatengsl. Það er hún sem leggur til að verkfallsrétturinn skuli tekinn af vinnandi fólki. Það er hún sem gerir það.