151. löggjafarþing — 28. fundur,  27. nóv. 2020.

kjaramál flugvirkja Landhelgisgæslu Íslands.

351. mál
[20:33]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Oft hefur maður nú séð málflutning hér í þingsal fara á lágt plan, en sjaldan eins og nú þegar hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir kemur hér upp og sakar mig um aðför að verkfallsréttinum. Það er svo fjarri öllum sannleika, og svo fjarri öllu sem kallast getur sanngjarn málflutningur og hlýtur að dæma sig sjálft, eins og raunar málflutningur hv. þingmanns gerir hér oft. Það er ekki hægt að ætlast til þess að stjórnmálamenn taki ekki málefnalega umræðu um stóru línurnar á vinnumarkaði þegar rætt er um lagasetningu á verkfall, því að þá hljótum við eðli máls samkvæmt að velta stóru myndinni fyrir okkur. En slík tillaga hefur ekki verið lögð fram, hún er ekki á þingmálaskrá þessa þings og það er í hæsta máta lélegur málflutningur hjá hv. þingmanni að taka þetta upp í umræðum um atkvæðagreiðslu um allt annað mál. Mér er eiginlega algerlega misboðið.