kjaramál flugvirkja Landhelgisgæslu Íslands.
Herra forseti. Hér hefur verið rætt um hið mikilvæga hlutverk Landhelgisgæslunnar. Undir þau orð tek ég heils hugar. Öryggi sjófarenda og almennra borgara þessa lands, hvar sem við búum, við hvaða erfiðu skilyrði sem er og í hvaða veðri sem er, verður ávallt að tryggja. Því hefði hæstv. dómsmálaráðherra átt að huga betur að síðastliðna mánuði og axla ábyrgðina á því að tryggja það öryggi. Að þessi lagasetning hér snúist eingöngu um öryggi get ég ekki fallist á. Við erum að taka þátt í því að setja lög á vinnandi stétt og afnema með þeim hætti verkfallsréttinn af vinnandi fólki, rétt sem vinnandi fólk hefur barist fyrir af afli um langt skeið. Svo hefur það gerst í ofanálag, ofan í þessa atkvæðagreiðslu, að hæstv. forsætisráðherra kemur fram í fjölmiðlum í kvöld og boðar mikil tíðindi í vinnumarkaðsmálum, sem er að veita ríkissáttasemjara rétt til að stöðva verkföll. Það er algjör stefnubreyting til veikingar á verkfallsréttinum, eins og forseti ASÍ hefur tjáð sig um. Það sem við erum að taka þátt í á Alþingi núna er ekkert annað en upptaktur að því að skerða möguleika vinnandi fólks á að berjast fyrir kjörum sínum og er veiking á verkfallsréttinum — veiking á verkfallsréttinn.
Þess vegna segi ég nei við þessum lögum. (ÞSÆ: Heyr, heyr.)