kjaramál flugvirkja Landhelgisgæslu Íslands.
Herra forseti. Það er hagur allra landsmanna að hafa reynslumikla flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni og að þeir hafi sömu kjör og aðrir flugvirkjar í landinu. En það getur ríkisstjórnin ekki sætt sig við. Þess vegna erum við komin á þennan vendipunkt. Þessi ríkisstjórn hefur staðið sig illa í að leysa kjaradeilur. Það má rifja það upp hér að hæstv. fjármálaráðherra dró ljósmæður fyrir dóm og reyndi að hafa af þeim laun fyrir vinnu í verkfalli. Og með konu í stóli forsætisráðherra var rekin harðlínustefna gagnvart ljósmæðrum. Ríkisstjórnin ber ábyrgð á þessu máli. Augljóst er að hún ræður ekki við það. En öryggi landsmanna má aldrei vera í óvissu.