151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

viðbrögð við úrskurði Mannréttindadómstólsins.

[15:05]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Kannski var gærdagurinn bara býsna góður dagur fyrir íslenska þjóð því að hann markar vonandi endalok pólitískra ráðninga dómara á Íslandi. Niðurstaða Mannréttindadómstólsins staðfestir að brot dómsmálaráðherra var alvarlegt og gróf undan grundvallarréttindum um réttláta málsmeðferð. Nú dugar pólitískum öflum ekki lengur að borga bara umsækjendum sem gengið er fram hjá bætur úr samneyslunni á meðan hinir sitja þóknanlegir áfram.

Ég er sammála hæstv. forsætisráðherra um að nú þurfum við að horfa fram á veginn, en við lærum ekkert nema við horfum líka til baka. Þegar forsætisráðherra var í stjórnarandstöðu lýsti hún yfir miklum áhyggjum af trausti til dómstóla og taldi ábyrgð dómsmálaráðherra mikla. Þá studdum við bæði greinargott nefndarálit þar sem áformum dómsmálaráðherra var mótmælt og taldir upp miklir ágallar. Þeir ágallar voru meira og minna staðfestir og nefndir í yfirrétti Mannréttindadómstólsins í gær. Jafnframt var ríkisstjórninni boðinn frestur til að vinna málið betur og rökstyðja frávik frá lista hæfisnefndar. Því var hafnað.

Það dylst engum hvað hæstv. forsætisráðherra fannst um framgang málsins vorið 2017. Engu að síður myndaði hún ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum hálfu ári síðar með sama dómsmálaráðherra og árið þar á eftir, eftir að Hæstiréttur hafði dæmt ráðherra brotlegan, varði forsætisráðherra og meiri hluti stjórnarþingmanna dómsmálaráðherra vantrausti.

Í ljósi þeirrar stöðu spyr ég: Telur hæstv. forsætisráðherra að það hafi verið mistök að verja ráðherra vantrausti á þeim tíma og jafnvel líka að mynda ríkisstjórn með flokki sem á mjög langa sögu um að seilast langt út fyrir eðlileg valdmörk?