viðbrögð við úrskurði Mannréttindadómstólsins.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem varðar þetta stóra mál, dóm yfirdeildar Mannréttindadómstólsins. Ég vil segja það í upphafi svars míns að mér finnst mikilvægt að taka af allan vafa um það að Ísland hefur ávallt staðið við allar skuldbindingar sínar gagnvart mannréttindasáttmála Evrópu. Við erum aðilar að mannréttindasáttmálanum og hluti af þeirri skuldbindingu sem við höfum tekið á okkur með því að vera þar er að fara vandlega yfir niðurstöður þessa dómstóls og tryggja að framkvæmd þessara mála verði þannig að hún verði hafin yfir allan vafa til framtíðar. Þannig höfum við meðhöndlað dóma Mannréttindadómstólsins hingað til.
Hér er í dag til að mynda á dagskrá mál um rannsókn skattalagabrota sem beinlínis á rætur að rekja til niðurstöðu Mannréttindadómstólsins. Mér finnst mikilvægt að segja það algjörlega skýrt hér í sal Alþingis að við þurfum að taka þennan dóm alvarlega. Ég hef ekki skipt um skoðun frá því að ég mælti fyrir nefndaráliti minni hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í júní 2017 þar sem ég benti á nákvæmlega þau efnisatriði sem hér eru tekin til skoðunar, þ.e. að ráðherra hafi vissulega haft heimild til að víkja frá áliti hæfisnefndar, en til þess að uppfylla þá heimild með fullnægjandi hætti hefði hún þurft að sinna rannsóknarskyldu sinni samkvæmt stjórnsýslulögum, sömuleiðis að virða andmælarétt samkvæmt stjórnsýslulögum. Ég tel að það hafi verið mistök hjá þáverandi meiri hluta að taka ekki í þá útréttu sáttarhönd sem minni hlutinn rétti þá fram um að fresta málinu. En það var ekki gert. Og þannig fór um sjóferð þá.
En ég ætla líka að segja að þegar dómur undirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu féll á vormánuðum 2019 þá axlaði þáverandi dómsmálaráðherra ábyrgð á þessu máli, pólitíska ábyrgð, og sagði af sér. Þannig er það nú bara. Við þurfum hins vegar nú öll, Alþingi, Hæstiréttur, framkvæmdarvaldið, að fara (Forseti hringir.) vel yfir dóminn og tryggja að slíkt endurtaki sig ekki.