viðbrögð við úrskurði Mannréttindadómstólsins.
Herra forseti. Axlaði ábyrgð — en af hverju var það ekki gert eftir að dómur Hæstaréttar féll? Það er vissulega gott að heyra í hæstv. forsætisráðherra hérna og heyra tóninn. Hæstv. fjármálaráðherra lýsti því nefnilega yfir í gær að það væri óþarfi að hafa áhyggjur af orðspori Íslands vegna þessa máls. En hann hafði svo sem heldur ekki áhyggjur af orðspori okkar þegar Panamaskjölin voru birt, þegar Ísland lenti á gráum lista eða þegar vísbendingar voru um gróft misferli stórfyrirtækis í Namibíu. Þess vegna spyr ég hæstv. forsætisráðherra hvort hún hafi áhyggjur af þessu.
Ráðherrar Sjálfstæðisflokks og einstakir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa í gegnum þetta ferli gert lítið úr þessu máli og jafnvel leyft sér að tala niður Mannréttindadómstólinn. Fyrrverandi dómsmálaráðherra (Forseti hringir.) hefur jafnvel gengið svo langt að velta því upp hvort Ísland eigi að segja sig frá honum og því spyr (Forseti hringir.) ég: Hefur hæstv. ráðherra áhyggjur af orðspori Íslands vegna þessa máls og finnst henni tilefni til þess að ríkisstjórn Íslands lýsi því yfir að Mannréttindadómstóllinn skipti (Forseti hringir.) okkur máli og við munum í öllu virða niðurstöðu hans?
(Forseti (SJS): Forseti mælist til þess að þingmenn beini aðallega máli sínu að þeim ráðherra sem þeir eiga orðastað við en noti ekki tímann til þess að fara hörðum orðum um aðra stjórnmálamenn sem ekki geta svarað fyrir sig í umræðunni.)