151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

viðbrögð við úrskurði Mannréttindadómstólsins.

[15:11]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Hv. þingmaður þarf ekkert að efast um það, ekki frekar en nokkur annar ef því er að skipta, að Ísland tekur skuldbindingar sínar gagnvart mannréttindasáttmála Evrópu alvarlega. Ég fór yfir mál sem eru á dagskrá þingsins í dag sem snúast um nákvæmlega það að mæta gagnrýni sem komið hefur fram hjá Mannréttindadómstóli Evrópu varðandi tvöfalda refsingu í skattalagabrotum og skattrannsóknum. Sýnir það ekki eindreginn vilja til þess að bregðast við? Ég tel að það sé enginn vafi á því, herra forseti. Og af því að hv. þingmaður spyr þá hef ég heldur ekki áhyggjur af orðspori Íslands. Ég hef engar áhyggjur vegna þess að það sem skiptir máli er hvernig við bregðumst við slíkum dómi, hvaða lærdóma við drögum af honum. Og ég tel að það geti verið ýmsir lærdómar.

Ég get líka sagt: Það er mín eindregna skoðun að það hafi verið rétt að skjóta málinu til yfirdeildar af því að ég tel að sá dómur sem féll í gær hafi dregið úr réttaróvissu og skýrt þessi mál miklum mun betur en sá dómur sem féll í undirdeildinni á sínum tíma.