úrskurður Mannréttindadómstólsins.
Virðulegi forseti. Fyrstu viðbrögð fyrrverandi dómsmálaráðherra sem og viðbrögð formanns Sjálfstæðisflokksins við niðurstöðu Mannréttindadómstólsins voru þau að dómurinn hafi í reynd ekki þýðingu og að í honum fari fram pólitískt at frekar en lögfræði. Kjarninn í gagnrýni Mannréttindadómstólsins gagnvart þessum ráðherra er einmitt sá að það var pólitískt at hennar og meðferð hennar á þessu máli öllu sem ekki samræmist grundvallarreglum réttarríkisins. Þungamiðjan í dóminum er skýr og segir brot dómsmálaráðherrans fyrrverandi ekki síður alvarleg fyrir þær sakir að hún hafi ítrekað verið vöruð við því að verklag hennar stæðist ekki, bæði af sérfræðingum í ráðuneyti hennar, ráðuneytisstjóra og síðan formanni hæfnisnefndarinnar. Um þetta mál upplýsti hún hvorki samstarfsflokka né þing eins og þekkt er og hún fór ekki leið upplýsingar. Hún fór leið blekkingar.
Viðreisn var í stjórn á þessum tíma og við berum okkar ábyrgð. Það höfum við sagt og það segi ég aftur. Við vildum tryggja jafnréttissjónarmið þegar nýtt dómstig tæki til starfa. Sú nálgun á hins vegar ekkert skylt við lögbrot og blekkingar dómsmálaráðherrans fyrrverandi. Í því kunna eflaust að felast ákveðin tíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn en sjónarmið um jafnrétti eru málefnaleg sjónarmið og allir sem vilja sjá að afstaða til kynjajafnréttis leiddi ekki til þess að 17 dómarar, allir með tölu, sögðu dómsmálaráðherra hafa brotið lög. Ástæðurnar eru allt aðrar og þær eru mjög skýrar.
Ég vil því spyrja hæstv. fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins: Tekur hann þennan dóm Mannréttindadómstólsins alvarlega og þá að hvaða leyti og vill hann undirstrika það að við eigum að uppfylla allar okkar skuldbindingar sem tengjast Mannréttindadómstólnum?