úrskurður Mannréttindadómstólsins.
Virðulegi forseti. Ég hef sagt um þennan dóm sem féll í gær að hann breyti ekki réttarstöðu þess einstaklings sem vildi fyrst láta reyna á stöðu sína fyrir íslenskum dómstólum og síðar fyrir Mannréttindadómstólnum. Hann óskaði eftir ógildingu dóms á Íslandi, því var hafnað, óskaði síðan eftir skaðabótum úti í Strassburg og því var hafnað. Þetta er meginniðurstaða máls einstaklings fyrir íslenskum dómstólum og hjá Mannréttindadómstólnum. Eftir sitja spurningar um hvort það er eitthvað nýtt í niðurstöðu Mannréttindadómstólsins og þegar að því kemur að Mannréttindadómstóllinn kveður upp úr með að skipan dómsins hafi ekki verið lögum samkvæmt, er auðvitað ekkert nýtt í því eftir að Hæstiréttur hafði fjallað um það atriði áður og svarað lögspurningunni með því að dæma þeim, sem höfðu verið inni á lista 15 hæfustu, skaðabætur. Þessari spurningu hafði verið svarað.
Ég vil vekja athygli á því, þegar fólk talar um að Ísland þurfi að virða skuldbindingar sínar samkvæmt mannréttindasáttmálanum, að það höfum við ávallt gert. Menn verða að láta fylgja sinn skilning á því hver þjóðréttarlega skuldbindingin er. Margir sem hafa blandað sér í þessa umræðu hafa látið að því liggja að okkur beri skylda til að fylgja í einu og öllu dómum Mannréttindadómstólsins, líkt og þeir gætu hnekkt niðurstöðu dómstóla á Íslandi. Þetta er auðvitað alrangt og afskaplega mikilvægt að allir geri sér grein fyrir því í þessu dæmi.
Hér talar hv. þingmaður um að fyrrverandi dómsmálaráðherra hafa verið með pólitískt at. Við skulum þá í þeirri umræðu ekki gleyma öllum þeim sem voru pólitískt að atast í dómsmálaráðherranum sjálfum og krefjast þess að hann léti niðurstöðu hæfnisnefndarinnar ekki verða sína tillögu. (Forseti hringir.) Skilaboðin héðan frá Alþingi, og Alþingi fær reyndar á baukinn í þessum dómi, (Gripið fram í.) voru þau að Alþingi myndi aldrei samþykkja þessa 15.