151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

úrskurður Mannréttindadómstólsins.

[15:17]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég veit ekki með hæstv. fjármálaráðherra en ég ætla að reyna að læra af þessu. Ekki með því að reyna að tala Mannréttindadómstólinn niður eða slá skjaldborg utan um persónur og leikendur eða stjórnmálaflokka, eða gamla og úrelta stjórnmálamenningu. Það er mér ekkert gamanmál að standa hér. Mér er hins vegar annt um að út úr þessu máli geti komið niðurstaða og ákvörðun sem skilar okkur Íslendingum sterkari og þroskaðri á eftir, að dómstólar landsins séu ekki aftur settir í stöðu sem þessa, að íslensk stjórnvöld sitji ekki á sama bekk og lönd sem við viljum ekki kenna okkur við þegar kemur að lýðræði. Það hlýtur að vera samtalið sem stjórnvöld þurfa að takast á við.

Þetta mál hefur leitt til þess að 17 dómarar Mannréttindadómstólsins hafa komist að afgerandi niðurstöðu sem er einfaldlega íslenskum stjórnvöldum í óhag. Sú niðurstaða kallar á að við eigum hér vitrænt samtal um hvernig við ætlum að (Forseti hringir.) bregðast við niðurstöðunni og hvernig við ætlum síðan að vaxa í kjölfarið.