úrskurður Mannréttindadómstólsins.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður getur kallað það að benda á inntak þjóðréttarlegrar skuldbindingar Íslands samkvæmt mannréttindasáttmálanum, að tala niður Mannréttindadómstólinn. Þetta er alrangt. Þetta er bara mikill misskilningur á málflutningi mínum. Ég er ekki að tala niður Mannréttindadómstólinn, ég er bara að setja hann á hillu þar sem hann á heima. Hann er fyrir neðan íslenska dómstóla samkvæmt stjórnarskránni. Þessu grundvallaratriði verður einfaldlega að halda til haga. Það stóð aldrei til að Mannréttindadómstóllinn gæti hnekkt niðurstöðu dómstóla á Íslandi sem fjallað hafa um þær lagalegu spurningar sem uppi hafa verið í þessu máli. Það er aðalatriðið. Því er ekki einu sinni haldið fram í þessum dómi síðan í gær að okkur beri að grípa til nokkurra sérstakra ráðstafana. Við þurfum einfaldlega að leggja mat á það. Þannig að að þessu leyti til er umræðan fyrir löngu síðan tæmd með dómum Hæstaréttar.
Ég ætla síðan að segja að mér finnst ósmekklegt að halda því fram hér um (Forseti hringir.) fólk sem ekki tekur þátt í umræðunni að það hafi verið að beita þingið blekkingum. Ég veit ekki annað en að þingið hafi fengið (Forseti hringir.) svör í málsmeðferð þessa máls við öllum spurningum sem að ráðuneytinu var beint og hafi tekið upplýsta ákvörðun, m.a. um að greiða atkvæði um alla í einu.