viðbrögð við úrskurði Mannréttindadómstólsins.
Forseti. Þrjú ár eru síðan forveri hæstv. ráðherra skipaði í Landsrétt en á þeim tíma hefur ekkert að ráði verið gert til að bregðast við réttaróvissunni sem strax var uppi vegna vafa um lögmæti skipunarinnar. Mannréttindadómstóll Evrópu felldi áfellisdóm í fyrra en í stað þess að bregðast við af auðmýkt og ábyrgð, með úrbætur að leiðarljósi, þráaðist ríkisstjórnin við og áfrýjaði til yfirdeildarinnar og vænti þess að dómnum yrði snúið við, eins og hæstv. dómsmálaráðherra komst að orði í gær. En svo varð ekki.
Nei. Í stað þess að bregðast við hefur ríkisstjórnin slegið skjaldborg um brot hv. þm. Sigríðar Á. Andersen. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur lengdi lífdaga fyrrverandi ráðherra í dómsmálaráðuneytinu, varði hana vantrauststillögu eftir áfellisdóm Hæstaréttar og ákvað svo að áfrýja dómi Mannréttindadómstólsins. Og nú loksins, þegar sjálf yfirdeild Mannréttindadómstólsins hefur slegið því föstu að um grófa pólitíska aðför að réttinum til réttlátrar málsmeðferðar hafi verið að ræða, heldur hæstv. dómsmálaráðherra því fram að ekki sé ástæða til að bregðast við dómnum.
Ég hlýt að spyrja, í ljósi þessara viðbragða hæstv. ráðherra, hvort hún sé meðvituð um hvaða áhrif það hefur þegar ríki eru dæmd brotleg gagnvart mannréttindasáttmála Evrópu. Staðreyndin er sú að dómstóllinn sendir erindi um brot aðildarríkis til ráðherraráðs Evrópuráðsins sem hefur samband við viðkomandi aðildarríki til að fá áætlun um hvernig aðildarríkið ætli að framfylgja dómnum og koma í veg fyrir sambærileg mannréttindabrot í framtíðinni. Rétta svarið gagnvart ráðherraráðinu er ekki að skila auðu. Ef upp koma sambærileg brot geta fallið alvarlegri og verri dómar gegn íslenska ríkinu.
Ég spyr því hæstv. ráðherra: Er henni alvara með að raunar þurfi ekki að gera neitt til að bregðast við dómi Mannréttindadómstólsins eða er hið augljósa kannski rétt að ráðherra sé einungis að reyna að gera eins lítið úr þessu stórmáli og hægt er?