151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

viðbrögð við úrskurði Mannréttindadómstólsins.

[15:23]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Það sem hv. þingmaður og þingmenn lýstu í gær, að það væri bráðavandi sem bregðast þyrfti við út af þeim dómi sem féll í gær, er einfaldlega rangt. Það er enginn bráðavandi í Landsrétti sem bregðast þarf við strax vegna þeirrar niðurstöðu sem kom í gær. Við erum auðvitað að skoða dóminn áfram. En lokaorðin þar eru afar skýr, að niðurstaðan hafi ekki áhrif á þau mál sem þegar eru dæmd né heldur eru þar dæmdar bætur fyrir aðila. Þannig tek ég undir þau orð sem lögmenn hafa látið falla um að þetta sé dómur sem horfi fyrst og fremst til framtíðar í stað þess að umbylta öllu því sem þegar er orðið. Það er einfaldlega það sem ég hef sagt. Það virðist ekki þurfa að leiða af sér verulega röskun á réttarkerfinu til framtíðar. Það er hægt að draga lærdóm af þessum úrskurði og tryggja að slíkt endurtaki sig ekki. Og fræðilega geta menn reynt að óska eftir endurupptöku, íslensk löggjöf tryggir fólki þann rétt að óska eftir endurupptöku með nýjum Endurupptökudómi.

Það var mikilvægt að biðja um að yfirdeildin tæki málið af því að það skapaðist einmitt mikil réttaróvissa vegna fyrri dómsins. Það var ekki bara óvissa um þessa fjóra dómara heldur vöknuðu alls konar aðrar spurningar, en þeirri óvissu hefur verið eytt með þessum skýra dómi sem féll í gær. Síðan kemur hv. þingmaður og segir að ríkisstjórnin eða ráðherrar hafi ekkert gert síðan fyrri dómur féll. Það er auðvitað líka rangt. Með því að skjóta málinu til yfirdeildar og fá niðurstöðu sem er mun skýrari og afdráttarlausari um fjölmörg mikilvæg atriði en fyrri dómur bregðumst við við, með þeirri endurnýjun sem átt hefur sér stað í Landsrétti. Þannig að það er rangt sem hv. þingmaður segir að það hafi verið fjórir dómarar sem þessi dómur bendir á. Það er aðeins einn, ekki fjórir, þar sem þrír hafa hlotið nýja skipun við dóminn og engin óvissa er lengur um sjálfstæða stöðu hans sem áfrýjunardómstóls. Í þriðja lagi hefur Alþingi nýlega sett lög um sjálfstæðan endurupptökudómstól og þau lög eru einmitt í samræmi við ábendingar og gagnrýni um fyrirkomulag þeirra mála. Það er því rangt að við höfum ekki tekið niðurstöðuna alvarlega og brugðist við henni með ábyrgum hætti. En það er líka rangt hjá hv. þingmönnum sem telja að það sé bráðavandi í Landsrétti vegna þessa dóms.