151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

viðbrögð við úrskurði Mannréttindadómstólsins.

[15:26]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður fullyrti að ekkert hefði verið gert. Það var það sem ég var að svara. Ég sagði í gær að ekki þyrfti að bregðast við dómnum, enda er kveðið skýrlega á um það í dómnum sjálfum að ekki þurfi að taka mál upp að nýju og að ekki yrðu dæmdar bætur. Við það stend ég.

Hv. þingmaður reynir hér að slá einhverjar pólitískar keilur og kemur með pólitískar upphrópanir um stöðu Sjálfstæðisflokksins við dómaraskipan. Sjálfstæðisflokkurinn býr ekki yfir neinni aðferðafræði við skipan dómara. Þeir eru skipaðir samkvæmt lögum sem síðast var breytt árið 2011 af þáverandi ríkisstjórn. Um árabil hefur verið deilt um það hvernig matsnefndir raða umsækjendum um dómarastöður og það er grunnurinn að þessu máli. Þegar við skoðum skipan dómara við öll dómstig síðustu ár almennt þá hafa þær skipanir gengið afar vel fyrir sig. Það hefur engin pólitík komið við sögu varðandi þær skipanir sem ég hef komið að, faglegt mat hefur ráðið ferðinni eins og nú síðast í skipun til Hæstaréttar Íslands (Forseti hringir.) þar sem ég valdi tvo af sex jafn hæfum einstaklingum, m.a. til að jafna stöðu kynjanna. Var það dæmi um pólitískar skipanir dómara sem þingmaðurinn er að dylgja með af því að fleiri voru hæfir en gátu hlotið þær stöður sem voru lausar til umsóknar?