framleiðsla hormónalyfja úr hryssublóði.
Virðulegur forseti. Mér finnst nú langt til seilst að ætla að þessa starfsemi sé alla hægt að fella undir orðið „dýraníð“. Ég held að sú starfsemi sem þarna um ræðir sé undir eftirliti dýralækna og Matvælastofnunar og að mörgu leyti er það frábært starf sem þarna er unnið. En ég efast ekkert um það, eins og á svo mörgum öðrum stöðum, að finna megi einhver atriði sem betur megi fara. Það er alveg óumdeilanlegt að sá möguleiki er fyrir hendi. Þegar ég er spurður hvað mér finnist um þessa starfsemi finnst mér ekki nein innstæða fyrir þeirri fullyrðingu að fella alla þá sem undir þessum hatti starfa undir það að þarna sé stórfellt dýraníð í gangi, mér finnst það ekki skynsamlegt og ekki eðlilegt. Ég hef ekki fengið kvartanir um slíkt inn á mitt borð sem ráðherra málaflokksins og mér kæmi verulega á óvart ef þeir sem eru í þessari atvinnustarfsemi ynnu með þeim hætti.