151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

framleiðsla hormónalyfja úr hryssublóði.

[15:33]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Þessi starfsemi hefur verið stunduð hér á landi í 40 ár og með ólíkindum ef það er að koma upp í dag að allan þennan tíma hafi íslenskir hrossabændur níðst á þeim dýrum sem þarna undir heyra. Starfsemin fer fram samkvæmt lögum um dýravelferð frá árinu 2013. Matvælastofnun fylgist með því. Mér er ekki kunnugt um hvort eða með hvaða hætti þetta er stundað einhvers staðar erlendis. Ég hef ekki upplýsingar um það eins og kom fram í svari sem ég veitti við fyrirspurn frá hv. þm. Ágústi Ólafi Ágústssyni hér á Alþingi og hv. þingmaður getur kynnt sér og liggur frammi.