151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

aðgerðir til stuðnings landbúnaði.

[15:37]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég vil fyrst af öllu gera athugasemd við að rætt sé um að staða landbúnaðarins í landinu sé ekki góð og það fullyrt í heild sinni um landbúnaðinn. Garðyrkja gengur mjög vel. Mjólkin gengur sömuleiðis mjög vel. Alifuglabúskapur gengur ágætlega, svínaræktin sömuleiðis. Vandinn sem við glímum við er sérstaklega í kjötframleiðslu, í lambi, sem er ekki nýr vandi, í nautakjöti. Þarna eru greinilega mjög sárir staðir í íslenskum landbúnaði í dag. Að sjálfsögðu er það hárrétt sem hv. þingmaður nefnir, en ekki ný sannindi, að áhrif kórónuveirunnar og samdráttur í komu ferðamanna til landsins upp á tvær milljónir ferðamanna hefur áhrif. Íslensk matvælaframleiðsla tekur skellinn af því eins og aðrar greinar. Við erum að vinna með hugmyndir í þeim efnum inni í ráðuneyti mínu sem ég vænti að geta kynnt innan tíðar.

Þegar hv. þingmaður nefnir tollasamninginn við Evrópusambandið ætla ég bara að minna hv. þingmann enn einu sinni á það hver aðild núverandi þingmanna Miðflokksins var að þeim samningi. Oft og tíðum talar Miðflokkurinn eins og hann sé nánast allur í heild sinni hvítskúraðir englar, en hann á sína hlutdeild í því verki. Ég teldi betra að menn könnuðust við þá hlutdeild frekar en að vísa henni til einhverra annarra sem bera síður ábyrgð.