aðgerðir til stuðnings landbúnaði.
Herra forseti. Ég verð að segja það að nú verður hæstv. ráðherra fara að koma með einhverjar lausnir og segja frá sinni stefnu, ekki að vera að tala alltaf um það hvað aðrir gerðu eða gerðu ekki. Þú verður einfaldlega, hæstv. ráðherra, að fara að sýna fram á að þú getir leyst (Gripið fram í.) vandann. (Gripið fram í.) Þú verður að fara að koma með lausnir. Þú kemur hingað í ræðustól og kallar eftir hugmyndum. Þú hefur engar hugmyndir sjálfur, hæstv. ráðherra. Þú verður að fara að koma með lausnir, það eru bara skilaboð.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra að því hvort hann hafi látið skoða samkeppnisumhverfi landbúnaðar, þ.e. bænda og afurðasölu fyrirtækja í nágrannalöndunum, og ef svo er hvort hann hafi borið það saman við starfsumhverfi þessara aðila hér á landi. Ég verð að segja, af því að hæstv. ráðherra sagði að landbúnaðurinn gengi vel, að landbúnaður gengur ekki vel þegar menn geta ekki selt vörur sínar, hæstv. ráðherra, og það er birgðasöfnun í landinu. Þá gengur landbúnaðurinn ekki vel. (Forseti hringir.) Ég held að hæstv. ráðherra hljóti að átta sig á því.