aðgerðir til stuðnings landbúnaði.
Virðulegi forseti. Það er svona þegar menn kenna einhverjum öðrum um. Það er ágætt þegar menn taka það til sín. Þegar ég segi að landbúnaðurinn gangi vel þá segi ég á sama tíma að hlutar hans ganga mjög illa. Ég nefndi þau atriði sérstaklega, þannig að ekki sé snúið út úr þeim orðum. Við finnum líka starfsemi innan landbúnaðarins sem gengur sem betur fer vel. Við megum ekki alhæfa um að allt sé í rúst. Það eru vissulega erfiðleikar þar og okkur ber að taka á því.
Já, við höfum látið bera saman starfsumhverfi landbúnaðarins við Noreg, Evrópusambandið, og erum að vinna með niðurstöðu frá Lagastofnun Háskóla Íslands í þeim efnum. Það er alveg ljóst að það er ákveðinn munur á lögum og reglum varðandi t.d. samstarf aðila í Noregi, Evrópusambandinu, við þær heimildir sem gilda um starfsemi landbúnaðarins á Íslandi. Það verður hluti af því verki sem ég hyggst kynna innan tíðar og ég nefndi í mínu fyrra andsvari.