fjárhagsstaða framhaldsskólanna.
Virðulegi forseti. Það er ekkert öðruvísi með skólamálin eða menningarmálin, að þar hefur Covid auðvitað haft gríðarleg áhrif. En mig langar til að ræða skólamálin sérstaklega, framhaldsskólamálin og háskólamálin, við hæstv. ráðherra. Við höfum aðeins drepið á þessu í fjárlaganefnd og mig langar að fylgja því eftir. Sérstaklega langar mig að fjalla um skólana í mínu kjördæmi sem kalla sig SAMNOR, þ.e. skólarnir á Norðurlandi og líka fyrir austan, þ.e. fjárframlögin til þeirra. Samkvæmt því sem dregið hefur verið saman þá reka þeir lestina í prósentuhækkunum á milli ára. Mig langar til þess að ræða það mál aðeins við ráðherra af því að það virðist hafa verið eitthvert samtal en eitthvað virðist það ganga hægt fyrir skólana að ná einhverri niðurstöðu. Við þekkjum þessa umræðu. Það er ekki eðlilegt að skólar geti ekki rekið sig á milli mánaða sökum þess að þeir geti jafnvel ekki borgað rafmagn eða annað slíkt. Eitthvað er ekki eins og það á að vera í reikniformúlunni. Það vekur líka athygli, miðað við fjárlagafrumvarpið og þann fjárauka sem við erum með, að t.d. Verkmenntaskólinn fær lægri upphæð en sambærilegir skólar sem eru þó margfalt minni. Mig langar líka aðeins að biðja ráðherra að koma inn á það. Það er jú líka þannig að þó að nemendum myndi jafnvel fækka á milli ára, sem er ekki að gerast núna, þá erum við með fastan kostnað sem er mikill. Í Framhaldsskólanum á Laugum eru 90% af rekstrargjöldunum föst, 38% eru húsnæðiskostnaður og rúm 54% eru rekstrargjöld. Mig langar að ræða þetta aðeins við ráðherra af því að það var líka þannig að hin innri leiga, sem hækkuð var í markaðsleigu, átti að vera algerlega dekkuð. (Forseti hringir.) Hún átti ekki að hafa nein áhrif eða breyta rekstrargrunni framhaldsskólanna. En það virðist vera að koma á daginn að hún gerir það.