151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

fjárhagsstaða framhaldsskólanna.

[15:44]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á stöðu framhaldsskóla og háskóla í Norðausturkjördæmi. Ég vil byrja á því að segja að ríkisstjórnin hefur verið að auka verulega alla fjármuni inn í menntakerfið. Við erum að tala um milljarðaaukningu, bæði vegna þess að við höfum verið að fara í stórsókn, við höfum náð OECD-meðaltalinu, við höfum hækkað fjárframlög á hvern einasta framhaldsskólanema á þessu tímabili vegna þess að við vitum að menntun skiptir öllu máli til framtíðar, og þess vegna höfum við farið þessa leið. Einnig vil ég nefna að það er ekki búið að ákveða fjárframlög á hvern skóla. Við ákváðum það vegna þessarar stöðu, þ.e. út af kórónuveirunni, að við myndum vera með það eftir 1. umr. eins og nemendafjöldinn var. Svo þyrftum við að líta á það aftur af því að fjöldinn er búinn að vera svolítið á reiki, það eru ofboðslega margir að koma inn í skólakerfið út af þessari stöðu sem uppi er, þúsundir inn á háskólastigið og líka þúsundir inn á framhaldsskólastigið. Allir skólarnir áttu að vera meðvitaðir um að þetta kynni að taka breytingum. Varðandi þá skóla sem hv. þingmaður nefndi, mun það gera það. Samtal er á milli starfsfólks mennta- og menningarmálaráðuneytisins og starfsfólks skólanna og mikill framgangur í því samtali.

Ég vil líka nefna að þegar verið er að ákveða fjárframlög á hvern skóla þá tekur það mið af fjölda nemenda, tegund náms, fjölda útskrifta, fjölda nýnema í viðkvæmri stöðu námslega, fjölda nemenda á starfsbrautum, húsaleigu, rekstri heimavista og öðru slíku, þetta kemur allt inn og myndar ákveðna heild. En ég vil bara ítreka að það var alveg ljóst að þetta myndi taka breytingum á milli 1. og 2. umr.