fjárhagsstaða framhaldsskólanna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Jú, við erum auðvitað að vinna með einhverjar tölur til leiðréttingar eins og kom einmitt fram þegar ráðherra kynnti fyrir okkur fjárlögin og þá óráðstöfuðu fjármuni sem hún var með til að bæta skólunum upp. Þeir geta sannarlega ekki hagrætt meira en þeir hafa gert. Það þekkjum við líka.
Mig langar líka að ræða við ráðherrann um þessa fámennu framhaldsskóla, þar sem gólfið svokallaða átti að vera komið inn í grunnframlögin en það virðist einhvern veginn ekki vera raunin. Ef svo er þá eru framlögin að lækka á milli ára og það getur aldrei hafa verið ætlun ráðuneytisins. Ég spyr aðeins út í það og svo líka út í Háskólann á Akureyri. Við höfum rætt það áður í þingsal að þar er búið að taka við gríðarlegum fjölda nemenda og alveg ljóst að ekki getur gengið eftir að halda nemendum inn á næsta ár ef ekki fylgja auknir fjármunir. Þess vegna verð ég að spyrja um bæði þessi skólastig: (Forseti hringir.) Erum við líka með næga fjármuni árið 2021 í ljósi nemendafjölgunarinnar sem varð nú í haust?